La Vita e Bella -

Uppáhaldsstaðurinn minn á Akureyri hefur alltaf verið La vita e Bella- staðurinn er þannig að ef það lægi „þannig“ á mér, þá myndi ég fara þangað ein, bara til að njóta matarins án þess að neyðast til að halda uppi samræðum. Það hefur reyndar bara gerst einu sinni.. okey, tvisvar. Sönn saga.
La vita e Bella er ítalskur staður í sama húsi og Bautinn, fyrir þá sem ekki þekkja til – en þó, að mínu mati miklu betri staður. Þetta er virkilega elegant og flottur staður, ítölsk stemning alla leið – með myndum á veggjunum til að styrkja andrúmsloftið, og í öll þau skipti sem ég hef komið þarna, með ítalska tónlist á fóninum.
Ég og litla systir mín eigum það til að detta í draumóraástand og ræða saman um dýrindis brauðið og pestóið sem staðurinn býður upp á, á meðan beðið er eftir matnum. Stundum væri ég til í að fara þangað, einungis fyrir það. Og þannig var það næstum því síðast þegar við skelltum okkur saman, systurnar.
Það var tekið vel á móti okkur við komuna, og staðurinn reyndar nær tómur þegar við mættum á staðinn rétt fyrir 20. Kertaljósin sem loguðu gerðu staðinn enn romantískari, sem var einmitt það sem við systur vorum að leitast eftir.
Ég pantaði mér stóran Thule við komuna og vandræðalegt að segja frá því að ég náði ekki að klára hann allan – en öll smáatriði voru á hreinu hjá starfsfólkinu, eins og til dæmis með vatnskaröfluna, sem fyllt var á í hvert sinn sem minnkaði ótæpilega í henni. Ég segi, í hvert sinn, en það gerðist samt bara einu sinni – þrátt fyrir það, kudos fyrir starfsfólkið.
Mér finnast smáatriðin oft vilja gleymast, en allt við þetta kvöld var til fyrirmyndar.
Ég gæti reynt að dæma tvenna rétti, þar sem við vorum tvær – en við erum óttalegir lúðar og fengum okkur það sama
af matseðli.
Kjúklingur með svepparisottó – þetta er réttur sem ég mæli HIKLAUST með. Það var allt við hann fullkomið –
risottoið heppnaðist akkúrat, sósuna langaði mig að drekka, og grænmetið dró fram bragðið í kjúklingnum. Þetta var
frábært kvöld í alla staði, og ekki skemmdi fyrir að verðið var ekki hræðilegt, miðað við háklassa reynsluna sem við
upplifðum.
Hiklaust 4 stjörnur af 5.


