Kvikmyndagagnrýni á Chronicle

Ég sá myndina Chronicle núna í vikunni og hún fjallar um þrjá stráka sem fá ofurkrafta eftir að hafa fundið einhvern sérstakan hlut grafin ofan í jörðu.
Strákarnir þrír Andrew Detmer, Matt Garetty og Steve Montgomery verða vinir eftir atvikið sem átti sér stað og eru alltaf að æfa sig meira og meira með þenna nýkomna mátt og komast fljótt að því að máturinn verður alltaf meiri og meiri.
Andrew Detmer kemur frá ofbeldisfullu heimili sem að fer að spila mikið inn í máttinn hjá honum og hann gerir þau mistök að hann drepur
óvart Steve Montgomery.
Þegar það fer að líða á myndina fer Andrew að vera svolítið öfgafullur og það endar á því að vinur hans og
frændi, Matt Garetty, drepur hann til þess að stoppa hann.
Mér fannst myndin frekar góð þrátt fyrir að hún falli undir þetta yfirnáttúrulega æði sem er í gangi núna
í kvikmyndum og sjónvarpi.
Myndin er látin líta út þannig að þeir séu að taka hana upp sjálfir eins og Cloverfield var uppbyggð, ef einhver man eftir henni.
Ef að fólki finnst svona yfirnáttúrulega krafta myndir góðar þá mæli ég með því að þið sjáið þessa og jafnvel þótt það sé ekki fyir svona myndir.
Marthen Elvar Veigarsson Olsen


