KSÍ gefur KA leyfi á að leika á Akureyrarvelli í sumar

Skilyrði stjórnarinnar er samt að búið verði að setja upp 300 aðskilin sæti í stúku vallarins fyrir 15. júli næstkomandi. Þessu skilyrði ætti auðveldlega að vera uppfyllt en Fasteignir Akureyrarbæjar pöntuðu á dögunum um 700 sæti frá Ítalíu. Áætlað er að setja sætin upp fyrir fyrsta heimaleik KA föstudaginn 25. maí.
Greint var frá því á heimasíðu KA að völlurinn lítur mun betur út á núna en hann gerði á sama tíma í fyrra en þá urðu miklar kalskemmdir á honum sem sáust út sumarið.


