KFC á Akureyri?

Helgi Vilhjálmsson oft kenndur við Góu hefur sótt um byggingarleyfi fyrir KFC veitingastað á Akureyri. Helgi óskar eftir að fá lóð á góðum stað sem þarf að vera 2000-3000 fermetrar. Ef beiðnin verður samþykkt verður þetta fyrsti KFC staðurinn fyrir utan áhrifa svæði Reykjavíkur.
KFC sem er stytting fyrir Kentucky Fried Chicken var stofnað af Harland Sanders í Bandaríkjunum árið 1952. KFC er stærsta skyndibitakeðja í heimi sem sérhæfir sig í sölu á kjúklingi , með um 10.000 veitingastaði vítt og dreift um allan heim. Á íslandi eru sjö KFC veitingastaðir, í Hafnafirði, Kópavogi, Mosfellsbæ, Reykjanesbæ, Selfossi og tveir í Reykjavík.


