Landpósturinn

Landpóstur - Fréttavefur Fjölmiðlanema

Fréttir

Karlar hætti að vera svona mikil karlmenni

Guðmundur Karl snyrtir mottuna rándýru.
Guðmundur Karl snyrtir mottuna rándýru.
Keppnin Mottu-mars hefur farið mjög vel af stað og nú þegar 10 dagar eru liðnir af keppninni hafa tæplega 1400 karlar safnað yfir 7 milljónum króna fyrir Krabbameinsfélag Íslands. Um er að ræða keppni í söfnun yfirvaraskeggs og áheita og á sunnudaginn varð Guðmundur Karl Sigurdórsson fyrsti karlinn til að safna meira en 100.000 krónum. Landpósturinn sló á þráðinn til hans að þessu tilefni.

„Mér fannst þetta skemmtileg leið til þess að minna á þetta málefni, krabbamein í körlum,“ segir Guðmundur aðspurður um hvað varð til þess að hann tók þátt. Honum finnst að karlar ættu ekki að líta á þetta sem feimnismál. „Karlar eiga að hætta að vera svona miklir karlmenn og fara til læknis ef þeim finnst eins og eitthvað sé ekki í lagi.“

Þetta málefni, krabbamein í körlum, stendur Guðmundi mjög nærri. „Málið er mér skylt þar sem ég greindist með krabbamein í nýra í vetur. Ég nýti því hvert tækifæri sem gefst til að minna á þetta verkefni,“ segir Guðmundur. Hann þurfti að fara í skurðaðgerð til að láta fjarlægja meinið og horfir nú bjartsýnn á framtíðina. „Það gengur vel hjá mér. Meinið hefur verið fjarlægt og ég er nú undir eftirliti.“

Nú þegar 10 dagar eru liðnir af keppninni er mottan farin að taka á sig mynd, en Guðmundur segir að hún sjáist ekki vel úr fjarlægð. „Söfnunin gengur mjög vel, en ég hins vegar bý við það að vera ljóshærður og því sést skeggið ekki vel úr fjarlægð. Fólk verður að koma alveg upp að mér til að sjá það vel,“ segir Guðmundur, en hann hefur fengið ráð um hvernig mætti gera skeggið meira áberandi. „Það hefur verið skorað á mig að lita það en ég hugsa að ég sleppi því.“

Til þess að ná þessum árangri í söfnuninni þurftu margir að hjálpa til. „Ég á marga Facebook vini og ég var með smá áróður þar,“ segir Guðmundur. Hann er ekki hættur þeim áróðri og skorar á fólk að leggja málefninu lið. „Ég skrifaði einhvern tímann að ef allir vinir mínir á Facebook myndu senda SMS og gefa þannig 500 kall myndi ég ná að safna hálfri milljón. Það hefur ekki gerst enn, en það er aldrei að vita hvernig það fer. Ég hvet fólk til þess að heita á mig, málefnið er gott.“

Þetta er ekki í fyrsta skipti sem hann safnar yfirvaraskeggi. „Ég hef reynt þetta áður en aldrei fengið leyfi til þess að safna í mottu,“ segir Guðmundur, en konan bannaði honum að safna yfirvaraskeggi áður. „Ég fékk ég leyfi núna og er á því að konunni finnist ég vera kynþokkafyllri og kynþokkafyllri með hverjum deginum sem líður.“

Blaðamaðurinn Landpóstsins skráði sig líka til leiks í þessa keppni en hefur komist nærri þeim árangri sem Guðmundur hefur náð og aðeins safnað tæpum 2500 krónum. En hvert einasta áheiti skiptir máli og ættu sem flestir að fara inn á www.karlmennogkrabbamein.is og leggja sitt að mörkum.

vev.


Mynd augnabliksins

img_8656.jpg

Könnun

Ætlar þú að lesa Rannsóknarskýrsluna?

Sjá niðurstöður
Sjá allar kannanir

Teljari

Í dag: 8
Samtals: 171887

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Innskráning