Landpósturinn

Landpóstur - Fréttavefur Fjölmiðlanema

Fréttir

KA hafði sigur á Stjörnunni í blaki

Meistaraflokkur KA í blaki
Meistaraflokkur KA í blaki
KA menn mættu Stjörnunni í kvöld í undanúrslitum Mikasa-deildar karla í blaki. Leikurinn var spilaður á heimavelli Stjörnunnar í Ásgarði í Garðabæ. KA menn unnu góðan sigur 3-0 og eru því 1-0 yfir í einvíginu í undanúrslitunum. KA vann hrinurnar 25-22, 25-23 og 26-24 en KA menn eru ríkjandi Íslandsmeistarar. Þeir hefja því titilvörnina vel en KA þarf að vinna tvö leiki í viðbót til að komast áfram. Hin tvö liðin sem keppa til undanúrslita eru KA og Þróttur Reykjavík en HK vann 3-1 sigur á Þrótti í Digranesi í kvöld og er því 1-0 yfir í þeirra einvígi.

Næstu leikir fara fram á fimmtudaginn og þá mætast KA og Stjarnan í KA-heimilinu kl. 17:00.


Mynd augnabliksins

img_0490.jpg

Könnun

Hvernig ferðu í skólann?

Sjá niðurstöður
Sjá allar kannanir

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Innskráning