Jindabyne

Myndin er áströlsk frá árinu 2006, leikstýrð af Ray Lawrence og eru þau Gabriel Byrne og Laura Lynney í aðalhlutverkum. Þetta er dramatísk mynd sem fjallar um fólk í bænum Jindabyne í New South Wales, Ástralíu. Nokkrir félagar fara í árlega veiðiferð þar sem þeir þurfa að ganga alllangt að ánni sem fiska á í. Fljótlega eftir að þeir eru komnir á áfangastað finna þeir lík stúlku í ánni. Í stað þess að fara strax til lögreglunnar, binda þeir fætur stúlkunnar við trjágrein, til þess að það fljóti ekki í burtu. Svo halda þeir áfram að veiða daginn eftir en halda svo heim og láta lögregluna vita af líkfundinum. Þegar þeir koma heim verður allt vitlaust yfir þessu, bæði eru íbúar bæjarins og einnig eiginkonur þeirra slegnar yfir því hvernig þeir meðhöndluðu líkið og að þeir skyldu bara halda veiðiferðinni áfram í rólegheitum.
Stewart (Gabriel Byrne) virðist ekki skilja að hann hafi gert neitt rangt, en þetta reynir mjög á konu hans (Laura Linney) og það sem henni er mikilvægt. Þetta veldur því mikilli ringulreið í þeirra tilveru.
Að mínu mati fjallaði þessi mynd í raun og veru um hvað við höfum öll mismunandi afstöðu til hlutanna og hvað sá mismunur getur haft dramatísk áhrif á sambönd fólks. Á þessu líkfundar-máli eru margar hliðar......eins og á öllum málum. Þetta er svona mynd þar sem maður heldur ekki með neinni persónunni.......maður getur sett sig í spor þeirra allra. Enginn hefur algjörlega rétt fyrir sér eða rangt fyrir sér. Það eru skýringar og ástæður fyrir öllu.
Lífið er ekki svart-hvítt.


