Landpósturinn

Landpóstur - Fréttavefur Fjölmiðlanema

Fréttir

Jafntefli gegn Króötum.

Gott stig í hús.
Gott stig í hús.

Íslenska landsliðið lék sinn fyrsta leik í milliriðli á Evrópumótinu í dag gegn Króötum, leikurinn endaði með jafntefli 26-26 sem eru góð úrlslit gegn sterku liði Króata.

Íslensku strákarnir voru að spila og þegar leið á fyrrihálfleik náðu þeir 3-4 marka forystu með flottum mörkum frá Ólafi Stefánssyni, Aroni Pálmasyni sem kom ferskur af bekknum og Alexander Petersson. Króatar, með Ivano Baic fremstan í flokki svöruðu fyrir sig og staðan í hálfleik því 15-12 fyrir Ísland.

Strákarnir héldu uppteknum hætti í síðari hálfleik og voru ávalt skrefinu á undan. Ólafur var að spila mjög vel í sókninni ásamt Arnóri og Róberti. Varnarleikurinn var sterkur með harðjaxlana Ingimund og Sverre fremsta, þó dómurunum hafi fundist Sverre heldur harður og ráku hann 3 sinnum útaf. Króatar náðu með góðri seiglu að jafna þegar 5 mínútur voru eftir. Leikurinn var í járnum eftir það og náði Snorri Steinn að jafna í 26-26 þegar mínúta var eftir, Króatar fóru í síðustu sóknin og héngu vel á boltanum og áttu gott skot undir lokinn sem Björgvin Páll varði glæsilega. Niðurstaðan því Jafntefli og eitt stig sem er mikilvægt upp á framhaldið.

Í öðrum leikjum riðilsins sigruðu Danir, Rússa nokkuð örugglega 34-28 og Norðmenn sigruðu Austuríki 30-27. Eftir leiki kvöldsins eru Króatar efstir í riðlinum með 5 stig, Ísland er með 4 stig og er í mjög góðri stöðu. Danir og Norðmenn eru einnig með 4 stig eftir sigra sína. Austuríki er með 1 stig og síðastir eru Rússar með 0.

Næsti leikur Íslands er á móti Rússum á morgun kl 15:00, þann leik er mjög mikilvægt að vinna til að stíga skrefi nær undanúslitum.

Mörk Íslands (skot):Ólafur Stefánsson 8 (12), Snorri Steinn Guðjónsson 6/4 (8/4), Róbert Gunnarsson 5 (5), Alexander Petersson 3 (6), Arnór Atlason 2 (3), Aron Pálmarsson 2 (8), Guðjón Valur Sigurðsson (1).
Varin skot: Björgvin Páll Gústavsson 15/1 (40/5, 38%).
   

 


Mynd augnabliksins

img_8668.jpg

Könnun

Ætlar þú að lesa Rannsóknarskýrsluna?

Sjá niðurstöður
Sjá allar kannanir

Teljari

Í dag: 5
Samtals: 174202

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Innskráning