Íslenskur bjór seldur í Kanada
Bjórinn sem verður seldur í Manitobafylki í Kanda, verður Egils Gull premium og Lava-bjór frá Ölvisholti. Bjórinn verður kominn í verslanir um miðjan marsmánuð. Það ætti að gleðja rúmlega 30 þúsund afkomenda Íslendinga sem búa í Kanada. Einnig hlýtur það að gleðja Íslendingana sem hafa flutt út til Kanada síðasta misseri.


