Landpósturinn

Landpóstur - Fréttavefur Fjölmiðlanema

Fréttir

Íslendingar töpuðu gegn Frökkum

Ásgeir Örn og félagar hans í íslenska landsliðinu töpuðu gegn Frökkum í dag. (mynd/mbl.is)
Ásgeir Örn og félagar hans í íslenska landsliðinu töpuðu gegn Frökkum í dag. (mynd/mbl.is)

Íslendingar töpuðu gegn heims- og ólympíumeisturum Frakka í úrslitaleik hraðmótsins í Bercy-höllinni í París í dag 35-25, en staðan í hálfleik var 17-13 fyrir Frakka. Fyrir þennan leik höfðu Íslendingar aðeins unnið Frakkar einu sinni í 11 leikjum frá árinu 2004 og var sá síðasti úrslitaleikurinn á Ólympíuleikunum í Peking í ágústmánuði árið 2008. Þetta var síðasti leikur liðanna fyrir Evrópukeppnina í Austurríki sem hefst á þriðjudaginn.

Frakkar byrjuðu leikinn betur og náðu snemma fjögurra marka forystu og þegar fyrri hálfleikur var hálfnaður var staðan 10-6 Frökkum í vil. Þá náðu Íslendingar góðum kafla og minnkuðu muninn niður í eitt mark, 13-12, þegar fjórar mínútur voru eftir af hálfleiknum. En á lokamínútum hálfleiksins gekk sóknarleikur Íslendinga ekki sem skildi og Frakkar náðu aftur fjögurra marka forystu, 17-13, og þannig var staðan í hálfleik.

Seinni hálfleikurinn byrjaði líkt og hinn fyrri endaði. Frakkar voru betri aðilinn á vellinum og juku forystuna jafnt og þétt. Íslendingar komust aldrei inn í leikinn og endaði hann með tíu marka sigri Frakka 35-25.

Sem fyrr segir hefst Evrópukeppnin í handknattleik á þriðjudaginn og fyrsti leikur íslenska liðsins er þann dag kl. 19.15 gegn Serbum. Íslendingar eru einnig í riðli með Austurríki og Dönum.

vev.



Mynd augnabliksins

img_0420.jpg

Könnun

Ætlar þú að lesa Rannsóknarskýrsluna?

Sjá niðurstöður
Sjá allar kannanir

Teljari

Í dag: 8
Samtals: 171887

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Innskráning