Landpósturinn

Landpóstur - Fréttavefur Fjölmiðlanema

Fréttir

Indversk kvikmyndahátíð

Stóri dagurinn
Stóri dagurinn

Indversk kvikmyndahátíð hefst á morgun í Bíó Paradís og stendur yfir dagana 11. til 20. apríl. Hátíðin er samstarfsverkefni Vini Indlands og Bíó Paradísar og er þetta í fyrsta skipti sem Indversk kvikmyndahátíð er haldin á Íslandi.

Hlutverk hátíðarinnar er að kynna hina stórkostlegu kvikmyndamenningu á Indlandi og styrkja starf Vini Indlands. Hluti af andvirði seldra miða fer til styrktar starfi þeirra á Indlandi

Myndirnar sem verða sýndar eru fimm margverðlaunaðar kvikmyndir, fjórar þeirra koma frá Indlandi og ein frá Pakistan. Þetta eru myndirnar Stóri dagurinn leikstýrð af Maneesh, Sharma Dhoom 2 leikstýrð af Sanjy Gadhvi, Hálsmenið leikstýrð af A.L. Vijay, Talaðu leikstýrð af Shoaib Mansoor og Vélmenni sem S. Shankar leikstýrði. Þetta eru bollywood, spennu, hryllings, grín og dramamyndir. Allar myndirnar eru sýndar með enskum texta.

Opnunarmynd hátíðarinnar

Opnunarmynd hátíðarinnar er Stóri dagurinn (Band baaja Baarat). Myndin segir frá pari, Shruti (Anushka Sharma) og Bittoo (Ranveer Singh) sem stofna saman fyrirtæki sem sérhæfir sig í að skipuleggja brúðkaup. Þau byrja sem viðskiptafélagar og planið var að halda einkalífi og vinnunni aðskildri en málin flækjast þegar tilfinningar blandast í leikinn. Atriðin í myndinni eru ótrúlega flott, mikið um söng, dans, liti og gleði.

Kvikmyndin  hefur unnið til  margra verðlauna. Anushka Sharma hlaut verðlaun sem besta leikkonan og Ranvweer Singh sem besti byrjandinn, en þetta var frumraun unga leikarans. Myndin hlaut verðlaun fyrir bestu tónlistina, tilnefnd fyrir besta leikstjórann og hlaut tilnefningu í Star screen Award sem besta myndin.

 



Mynd augnabliksins

hjalmar_034.jpg

Könnun

Hvernig ferðu í skólann?

Sjá niðurstöður
Sjá allar kannanir

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Innskráning