Landpósturinn

Landpóstur - Fréttavefur Fjölmiðlanema

Fréttir

Í kröppum dansi

Sjö íslensk danspör hafa verið sett í bann frá öllum mótum á vegum Alþjóða dansíþróttasambandsins, WDSF, og aðildarfélögum þeirra.  Fresta þurfti Íslandsmeistaramótinu í 5 og 5 dönsum sem fara átti fram um helgina vegna þessa. 

Íslensku danspörin tóku þátt í bönnuðum keppnum á Bretlandi síðast liðið haust, segir í fréttatilkynningu frá Dansíþróttasambandi Íslands, DSÍ.  Þau voru í kjölfarið sett í 3 til 6 mánaða bann.  Þar sem Dansíþróttasamband Íslands er aðili að Alþjóða dansíþróttasambandinu bar DSÍ að setja þau einnig í bann hér á landi.  Sex af þessum bönnum renna út um miðjan febrúar en eitt um miðjan maí.

Forráðamenn einhverra paranna kærðu ákvörðun DSÍ til dómstóls Íþrótta- og Ólymíusambands Íslands, ÍSÍ.  Niðurstaða dómstólsins var sú að bann Alþjóða dansíþróttasambandsins væri ekki í gildi á Íslandi og því mættu pörin keppa á Íslandsmeistaramótinu sem fara átti fram helgin 11. og 12. febrúar.  DSÍ hefur áfrýjað dómnum til afrýjunardómstóls ÍSÍ sem er æðsti dómstóll innan hreyfingarinnar.

Öll Íslandsmeistaramót DSÍ eru haldin undir formerkjum Alþjóða dansíþróttasambandsins og því ber DSÍ að fara eftir þeim lögum og reglum sem eru í gildi hverju sinni.  Með því að halda Íslandsmeistarmótið hefði DSÍ þurft að leyfa umræddum pörum að taka þátt í mótinu en á sama tíma brotið gegn banni Alþjóða dansíþróttasambandsins.  Það hefði hugsanlega í för með sér keppnisbann á öllum pörum DSÍ um óákveðin tíma og jafnvel brottrekstur úr sambandinu.

Samkvæmt heimildum Landpóstsins er töluverð ólga innan DSÍ vegna málsins.  Þá eru menn afar ósáttir við að danspörin hafið viljað taka þátt hér heima þrátt fyrir bannið og afleiðingarnar sem þáttataka þeirra gæti haft í för með sér.  Einnig er mikil óánægja með þá ákvörðun að senda pörin á bannaða keppni en sú ákvörðun var full meðvituð segir heimildarmaður Landpóstsins sem vill ekki láta nafns síns getið.

Í ljósi þeirra aðstæðna sem upp var komin óskuðu formenn sjö dansíþróttafélaga innan DSÍ að Íslandsmeistarmótinu yrði frestað og samþykkti stjórnin það í gær.  Þá telur stjórnin ekki æskilegt að halda keppni á meðan málaferlið sé enn í gangi.



Mynd augnabliksins

20110120-_mg_1455-11.jpg

Könnun

Ætlar þú til útlanda í sumar?

Sjá niðurstöður
Sjá allar kannanir

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Innskráning