Í Kína borða þeir hunda

Kínverska stjórnin hefur skrifað undir viljayfirlýsingu þess efnis að taka kjötið af markaði án þess þó að lögin hafi verið samþykkt ennþá. Þetta er þó talið vera stórt skref fram á við og virðist vera nokkur ánægja með þetta víða í Kína. Þó eru enn margir sem eru ósáttir og eins og einn veitingamaður sagði “Það þarf ekki að borða dýrin sem eru alin upp á heimilum heldur bara þau sem eru ræktuð.” Reyndar segja þeir sem þekkja til að það gæti tekið allt að tíu ár að ná þessu í gegn. En þetta er þó góð byrjun á máli sem skiptir marga máli. Þetta byrjaði á því að á ólympíuleikunum í Beijing fyrir tveimur árum en þá skipuðu yfirvöld veitingamönnum að taka hunda- og kattakjöt af matseðlinum á meðan á leikunum stóð svo gestum leikanna ofbyði ekki og nú ætla þeir sér að gera það sama fyrir Asíu leikanna sem eru seinna á þessu ári.
Heimild: http://www.cnn.com/2010/WORLD/asiapcf/03/09/china.animals/index.html?hpt=T2


