Landpósturinn

Landpóstur - Fréttavefur Fjölmiðlanema

Fréttir

Í dag er Alþjóðlegur baráttudagur kvenna

Þess er minnst með margvíslegum hætti á Akureyri í dag, 8. mars að alþjóðlegur baráttudagur kvenna er hundrað ára í ár Jafnréttisstofa er með opið hús frá kl.11:30-13:30 Þar sem gestum gefst kostur á að kynna sér starfsemina og þiggja léttar veitingar. Fulltrúar stjórnmálaflokkanna í bænum, rektor Háskólans á Akureyri, skólastjórnendur í VMA og MA, jafnréttisfulltrúi bæjarins ásamt nemendur úr grunnskólum munu lesa upp úr jafnréttislögunum og áföngum á leið til jafnréttis, í versluninni Eymundsson frá kl. 16.15-17:00 á vegum Jafnréttisstofu og Akureyrarakademíunnar Ráðstefna undir yfirskriftinni “Jöfn staða kynjanna er forsenda farsældar” sem er sú fyrsta í ráðstefnuröð SFR 2010 fer fram í Rósenborg frá kl 13:00 -16.00. Þar flytur Tryggvi Hallgrímsson, sérfræðingur á Jafnréttisstofu erindið“Kreppan og kynjajafnrétti”. Einnig fjallar Kristín Ástgeirsdóttir, framkvæmdastýra Jafnréttisstofu um“Kyn og loftslagsbreytingar - björgum jörðinni saman”.


Mynd augnabliksins

img_4696.jpg

Könnun

Ætlar þú að lesa Rannsóknarskýrsluna?

Sjá niðurstöður
Sjá allar kannanir

Teljari

Í dag: 8
Samtals: 171887

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Innskráning