Landpósturinn

Landpóstur - Fréttavefur Fjölmiðlanema

Fréttir

Hvítlaukur gegn svínaflensu?

Hvítlaukskaupmenn í Kína eru um þessar mundir að stórgræða eftir að orðrómar fóru að berast um að neysla á hvítlauk gæti komið í veg fyrir svínaflensu.Verðið á grænmetinu hefur hækkað gríðarlega og eru harðsvíraðir kaupmenn í landinu að kaupa allan þann hvítlauk sem þeir geta.

Samkvæmt viðskiptaráðuneyti Kína hefur meðal kílóverð hækkað frá um 30 krónum upp í rúmlega 100 kr. Á sumum mörkuðum er verðið orðið 40 sinnum hærra en áður og eru sumir kaupmenn að græða margar milljónir á þessari trú fólks. Skóli einn í landinu keypti til að mynda 200kg af hvítlauk og notar í hverja einustu máltíð sem gefin er nemendum til að koma í veg fyrir H1N1 veiruna.

Ekki er talið líklegt að einhver fótur sé fyrir þessum orðrómum, ekki frekar en að hvítlaukurinn sé gott vopn gegn vampírum. En víst er að hvítlaukskaupmenn í Kína kvarta ekki.


Mynd augnabliksins

p9301044.jpg

Könnun

Ætlar þú að lesa Rannsóknarskýrsluna?

Sjá niðurstöður
Sjá allar kannanir

Teljari

Í dag: 6
Samtals: 171885

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Innskráning