Landpósturinn

Landpóstur - Fréttavefur Fjölmiðlanema

Fréttir

Horfst í augu við síðasta tígurinn?

Craig Tracy - The Last South China Tiger?
Craig Tracy - The Last South China Tiger?
Bresku dýraverndunarsamtökin, Save China´s Tigers, hafa fengið líkamslistamanninn Craig Tracy til að búa til sérstæðan gjörning til að vekja athygli á útrýmingarhættu suður-kínverska tígursins.

Verkinu er ætlað að vekja fólk til meðvitundar og leggja verndunaraðgerðum lið með fjárframlögum, en söfnunin hefst formlega þann 14. febrúar næstkomandi.

Craig bretti upp ermarnar og hófst handa í stúdíói sínu, í New Orleans, við að formgera þema verksins - andlit síðasta tígursins. Hann notaði bera líkama þriggja módela sem striga og stillti þeim upp þannig að baksvipir þeirra mótuðu andlit South China tígursins að verkinu loknu.
Hér má sjá ferli listsköpunarinnar og það má með sanni segja að hugmyndin komi frábærlega vel út hjá Craig.


Samtökin, Save China´s Tigers, voru stofnuð árið 2000 af Li Quan og manni hennar, Stuart Bryant. Þau halda úti dýraverndunarsvæðum í Suður-Afríku og Northern Cape Province, en fyrirhugað er að stofna það þriðja í Kína. Li segir að samtökin hafi fengið fullorðin dýr að láni frá dýragörðum og nú þegar hafa nokkrir heilbrigðir tígrisdýrahvolpar fæðst. Parið sem hefur verið hvað frjósamast eru Madonna og TigerWoods, sem hefur feðrað 7 hvolpa. Hvolpunum verður sleppt í fyllingu tímans á slóðir náttúrulegra heimkynna tegundarinnar í Kína og stefnt er að því að það verði innan 2ja ára. Hún segist vona að hið sérstæða verk Craigs muni koma til með að hjálpa málstað samtakanna, og bjarga þannig stofni hins fallega suður-kínverska tígurs.


Árið 2010 hefur verið útnefnt „Alþjóðlegt ár líffræðilegrar fjölbreytni“ af Sameinuðu Þjóðunum en samkvæmt kínverskri stjörnuspeki er árið 2010 „Ár tígursins“. Dýraverndarsamtökin The World Wildlife Fund, Save China´s Tigers og fleiri, hafa því ákveðið að nýta sér ár tígursins til að leggja áherslu á varðveislu líffræðilegrar fjölbreytni tígrisdýrategundarinnar með því að hefja verndunaraðgerðir til að forða þeim frá því að deyja út. Líffræðileg fjölbreytni er skilgreind sem fjölbreytileiki tegunda, erfðafræðilegur breytileiki milli einstaklinga sömu tegundar eða fjölbreytileiki vistkerfa. Viðhald fjölbreytninnar er einn af hornsteinum sjálfbærrar þróunar. Mikill breytileiki í erfðamengi eykur líkurnar á því að einhverjir einstaklingar lifi af umhverfisbreytingar.

Önnur dýr á topp 10-lista WWF, yfir tegundir í útrýmingarhættu, eru ísbirnir, pandabirnir, nashyrningar, bláuggatúnfiskur og fjallagórillur.


Þess má að lokum geta að á síðustu öld hefur tígrisdýrum fækkað um 95% og vísindamenn telja að nú séu aðeins um 3.200 tígrisdýr eftir í heiminum. 3 tegundir hafa nú þegar verið staðfestar sem útdauðar, Bali-, Java- og Caspiantígrar. Nú setja vísindamenn spurningarmerki við það hvort suður-kínverski tígurinn (South China Tiger) muni hugsanlega mæta sömu örlögum, þar sem tegundin sást síðast – svo fullvíst sé – fyrir um 20 árum. Þau örfáu dýr sem eftir eru, eru nú vernduð innan dýragarða en ljóst þykir að það er mikilvægt að efla stofninn til að varðveita tegundina, og þar með líffræðilega fjölbreytni.

- Mel

.


Mynd augnabliksins

pict4038.jpg

Könnun

Ætlar þú að lesa Rannsóknarskýrsluna?

Sjá niðurstöður
Sjá allar kannanir

Teljari

Í dag: 5
Samtals: 174202

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Innskráning