Landpósturinn

Landpóstur - Fréttavefur Fjölmiðlanema

Fréttir

Hjálmar á Græna Hattinum

Hjálmar ásamt Jóni Ólafssyni. Á myndina vantar Sigurð Guðmundsson. Mynd: Hrafn G.
Hjálmar ásamt Jóni Ólafssyni. Á myndina vantar Sigurð Guðmundsson. Mynd: Hrafn G.
Hjómsveitin Hjálmar hélt tónleika á Græna Hattinum í gær. Ég hafði aldrei verið þess heiðurs aðhljótandi að sjá þá live, en þó langað til þess í langan tíma, og ákvað því að slá til og drífa mig á eins og eitt stykki páskatónleika. Reyndar kostaði miðinn alveg 2.900 krónur en löngunin var það sterk að ég lét mig hafa það.

Tónleikarnir áttu að byrja klukkan tíu og ég ákvað að vera tiltörlega tímanlega í þessu, þar sem að þekkt er að staðurinn eigi það til að verða ansi þétt setinn á kvöldum sem þessum, og mætti rétt fyrir níu. Eftir að hafa staðið í röð í korter eða svo þá tókst mér að ná mér í borð alveg fremst þar sem ég hafði góða sýn á sviðið og ekki var það að skemma fyrir upplifuninni.

Þeir félagar voru lítið að stressa sig á tímanum og þegar klukkan var um tuttugu mínútur yfir tíu þá stigu þeir á svið við mikin fögnuð áhorfenda. Þeir opnuðu tónleikana með fyrsta laginu af fyrstu plötunni sinni, Jamm og Jú, og mátti strax greina að það stefndi í hörku góða tónleika. Allir hljómsveitarmeðlimir virtust algörlega vera að fíla sig í botn og innlifunin mikil. Ég tók þó sérstaklega eftir töktunum hjá trommuleikaranum og virtist hann alveg vera týndur í tónlistinni á köflum. Þó svo að fyrra settið væri vel yfir klukkustund að lengd þá fannst mér eins og það væri rétt að byrja þegar að tilkynnt var að komið væri að pásu.

Seinna settið var ekki síðra en það fyrra og ætlaði allt um kolla að keyra þegar að þeir tóku Borgina. Þá var komin rosaleg stemming í fólk og margir farnir að söngla með og dilla sér eins og svo þægilegt er að gera við reggea tónlist. Þegar tónleikarnir áttu að enda og hljómsveitar meðlimir við það að hafa sig af sviðinu voru áhorfendur ekki á þeim buxunum og ekki lengi að klappa þá upp aftur. Þeir tók því tvö lög í viðbót og við það nýttu sumir áhorfenda sér tækifærið og stigu dans við sviðið.

Á heildina litið voru þetta alveg einstaklega góðir og skemmtilegir tónleikar. Þrátt fyrir hátt miða verð þá var það vel þess virði miðað við það sem fyrir peninginn fékkst, og er ég ansi viss um að ég mun reyna mitt besta til að komast á tónleika með sveitinni á ný um leið og tækifæri gefst. Hljóðið var gott og góður balance á milli hljóðfæra og söngs og innlifun hlómsveitar meðlima og frammistaða þeirra frábær. Mér dettur þó í hug að þeir sem að þurftu að standa eða sitja aftast hafi ekki fengið jafn góða upplifun af tónleikunum og ég, enda staðurinn smekk fullur og þverfótaði varla fyrir fólki. Ég myndi hiklaust mæla með hljómsveitinni fyrir hvern þann sem að gaman hefur að góðri tónlist og er tilbúinn að borga smá fyrir. Takk fyrir mig.

Ég var með myndavélina meðferðis og nálgast má myndirnar hér.


Mynd augnabliksins

20110217-_mg_8069-12.jpg

Könnun

Hvernig ferðu í skólann?

Sjá niðurstöður
Sjá allar kannanir

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Innskráning