Hjálmar á Græna Hattinum
Menning - fimmtudagur 26.mars 2009 14:00 - - Lestrar 42 - Athugasemdir (0)

Hjálmar í hljóðveri - mynd Guðmundur Vigfússon
Hljómsveitin hefur ekki látið mikið á sér bera að undanförnu. Sveitin er þó í fantaformi þessa dagana og hefur
verið á kafi í upptökum á sinni fjórðu breiðskífu síðustu vikurnar. Undanfarið hefur hljómað á
öldum ljósvakans útfærsla þeirra af laginu "Who the Cap Fit" eða "Heyrist hverjum" sem Bob Marley gerði frægt um árið en
það lag mun einmitt prýða nýju breiðskífuna.
Upptökur hafa gengið vel en í maí heldur hljómsveitin til vöggu reggítónlistarinnar, Jamaíka, til að leggja lokahönd á verkið. Þar munu einnig ýmsir góðir innfæddir tónlistarmenn leggja strákunum lið og setja svip sinn á plötuna.
Á tónleikunum munu lög af nýju plötunni skipa veglegan sess og því ættu aðdáendur sveitarinnar ekki að láta sig vanta.
Tónleikarnir hefjast kl.22.00 og húsið opnar kl.21.00
Forsala er hafin í Eymundsson Hafnarstræti og miðaverð er kr.2000.