Hin eina sanna Píslarganga

Síðan hefur árlega verið gengin Píslarganga umhverfis Mývatn og hefur fjöldi göngumanna verið frá fjórum og upp í 250 manns
þegar mest hefur verið. Fjöldi fólks hefur gengið fram af sér í Píslargöngunni umhverfis Mývatn enda er hún sú eina sanna vel
rúmlega 36 kílómetrar. Það hefur tekið marga daga að jafna sig eftir gönguna, göngufólk hefur misst táneglur, haft strengi í
mjöðmum og kálfum, en hefur fengið „aflausn“ sinna mála í göngunni. En þrátt fyrir að fólk hafi lent í
veikindum vegna ofreynslu þá togst það af stað aftur reynslunni ríkara og með betri undirbúning en árið áður. Þannig sigrast
hver hringurinn á eftir öðrum og píslargangan verður að sælugöngu. Svo er auðvitað hinn hópur þátttakenda, sá sem
kemur sér og sigrar og jafnvel hleypur síðustu kílómetrana, en fyrir þá er þetta ekkert merkilegt.
Píslargangan hefst á því að sungnar eru tíðir í Reykjahlíðarkirkju og síðan leggur gönguhópurinn af stað.
Bíll fylgir hópnum þar sem aukaskór eru geymdir ásamt nesti dagsins og einnig er hægt að fá bílferð spöl og spöl fyrir
þá sem það vilja. Nú, í göngunni 2012 kom Finnur Baldursson í fyrstu kaffipásu sunnan við Vagnbrekku með eftirfarandi
vísu:
Á föstudaginn langa er farin píslarganga
þá fínt ei er að hanga í heimaranni súr
þar garpar margir spranga og golan strýkur vanga
og góðan finna angan má í þeim ljúfa túr.
Sel veitingahús selur súpu og kakó og síðan er hægt að koma við í Skútustaðakirkju þar sem lesnir eru Passíusálmarnir frá kl. 11:00 til 14:00. Það er nauðsynlegt að tylla sér inn í þessa litlu kirkju smástund, en því miður eru allt of margir göngumenn sem gefa sér ekki tíma til þess. Hótel Reynihlíð hefur boðið upp á mjög góða tilboðspakka sem innihalda gistingu, morgunmat og 3ja rétta kvöldverði ásamt ferð í Jarðböðin. Þetta er afar sanngjarnt verð og veitingarnar í besta gæðaflokki. Einstaklega ljúf stemming á Hótelinu og Mannabar sem allt of fáir göngumenn notfæra sér á eftir göngunni.
En nú er svo komið að það eru gengnar píslargöngur mjög víða um land. Til dæmis píslarganga frá
Valþjófsstað í Skriðuklaustur, píslarganga á Strýtu og finnst mér þær geta heitið eitthvað annað því
Píslargangan er umhverfis Mývatn og er hún hin eina sanna. Píslarganga er ekki gengin í Laufás heldur heitir hún „Föstuganga“ og er
gengin að Laufási frá þrem kirkjustöðum. Svo er til píslarganga sem er gegnin á Þorláksmessu að sumri (23. júlí)
á tveimur dögum alls um 45 km. sem er frá Þingvallakirkju að Skálholti og er gist á Laugarvatni á leiðinni.
Það er svo sem sama hvað gangan heitir og hvar hún er, það er bara að kunna að njóta hennar og því sem hún bíður
uppá, íslenskt veðurfar, náttúru og góða ferðafélaga!
Apríl 2012 Arna Jakobína Björnsdóttir


