High Tea - Skemmtilegur og öðruvísi kostur
Að fá sér High Tea á Icelandair Hotel við Þingvallastræti hefur heldur betur fallið í kramið hjá Akureyringum. Þetta er skemmtileg tilbreyting í kaffihúsaflóru bæjarins og hópar nýta sér gjarnan þennan möguleika til að gera sér dagamun.
High Tea er upprunalega breskur siður og í boði á fínni hótelum þarlendis, t.d. í London. Að sögn Sigrúnar Bjarkar Jakobsdóttur hótelstjóra voru við opnun hótelsins uppi hugmyndir um að bjóða upp á einhverjar nýjungar hér fyrir norðan og var fyrirmyndin að High Tea sótt til Hilton Reykjavík Nordica.
High Tea er framreitt í setustofu hótelsins alla daga frá kl. 14:00-18:00 og er um að ræða brauð og sætindi ásamt te og kaffi. Flestar tegundirnar eru bakaðar og lagaðar af matreiðslumönnum hótelsins, sem virkilega hafa sett hjartað í gerð og framsetningu veitinganna því þær eru glæsilega framreiddar og bragðgóðar eftir því. Setustofan er hlýleg, þar er arineldur, aðgangur að bókum og dagblöðum og þar er einnig spennandi nýjung fyrir unnendur léttvína; víonótek, eða sjálfsafgreiðslubar með nokkrar tegundir léttra vína í boði. Á hótelinu er einnig rekinn veitingastaður sem hefur getið sér gott orð og er hægt að ganga út af honum á sólríka verönd sem snýr í hásuður.
Icelandair Hotel við Þingvallastræti var opnað þann 9. júní síðastliðinn í húsnæði gamla Iðnskólans. Þykja breytingarnar sem gerðar voru á húsnæðinu hafa tekist afar vel, bæði innandyra og utan.




