Landpósturinn

Landpóstur - Fréttavefur Fjölmiðlanema

Fréttir

Hestamenn ósáttir vegna fasteignagjalda.

Íslenski hesturinn er eitt helsta stolt Íslendinga.
Íslenski hesturinn er eitt helsta stolt Íslendinga.
Landsamband hestamannafélaga (LH) hefur frá árinu 2007 reynt að fá ráðherra sveitarstjórnarmála og Samband íslenskra sveitarfélaga til að hætta að mismuna hesthúsaeigendum allt eftir því hvar hús þeirra eru staðsett, á lögbýlum eða í þéttbýli.
Báðir aðilar eru jákvæðir gagnvart því að leiðrétta mismuninn þarna á og eyða óvissunni um heimild sveitarfélaganna til að túlka lögin þannig að álögð fasteignagjöld á hesthúsum væru eins og um atvinnuhúsnæði væri að ræða. Óvissa ríkir einnig um það hvort mismununin eftir því hvar húsin eru staðsett standist jafnræðisreglu stjórnarskrárinnar þar sem verið er að mismuna einstaklingum eftir búsetu.
Ekkert hefur gerst í þessu réttlætismáli að hálfu þessara stjórnvalda sem bera ábyrgð á þessari mismunun þrátt fyrir loforð um lagfæringar. Stjórn LH fól árið 2010 lögfræðingi að kæra málið fyrir yfirfasteignamatsnefnd til að fá álit hennar á mismununinni og komst hún að þeirri niðurstöðu að sveitarfélögunum væri þetta heimilt. Nefndin tók þó ekki afstöðu til þess hvort hún bryti í bága við jafnræðisregluna eða væri gegn markmiðum samkeppnislaga. Reykjavíkurborg óskaði í framhaldinu eftir því við Alþingi að það breytti lögunum um tekjustofna sveitarfélaga. Reykjavíkurborg leggur til að hesthús þar sem ekki er rekin atvinnustarfsemi verði sett í a. flokk, eins og íbúðar og frístundahúsnæði t.d.

Stjórn LH fagnar þessu frumkvæði til breytinga á lögum á tekjustofnum sveitarfélaga, en er ósammála þeim hluta sem Reykjavíkurborg leggur til, þar sem hann felur í sér mismunun eftir búsetu. Stjórn LH leggur til og endurtekur að öll hesthús hvar sem þau eru staðsett á landinu flokkist í a. flokk.

Hestamannafélögin og LH eru aðilar að Íþrótta og Ólympíusambandi Íslands og eru þar þriðja fjölmennasta sérsambandið með rúmlega tíu þúsund félagsmenn.
Hestaíþróttamenn verða að byggja sín hús sjálfir og reka þau fyrir eigin reikning á meðan ríki og sveitarfélög byggja yfir flestar aðrar íþróttagreinar og niðurgreiða svo oft aðstöðu til þjálfunar og iðkunar þessara íþróttagreina.
Með þessum úrskurði yfirfasteignamatsnefndar sitja eigendur hestahúsa í þeim sveitarfélögum sem beita þessari túlkun á lögum um tekjustofna í þeirri óvæntu stöðu að sitja uppi með gjörbreyttar forsendur fyrir ástundun sinnar íþróttar þar sem margir geta ekki, átt, leigt eða selt sín hesthús.
Þessa stöðu getur
Landsamband hestamannafélaga ekki sætt sig við og skorar á Alþingi að tryggja stöðu hestaíþróttarinnar og breyta lögunum.


Mynd augnabliksins

20110224-_mg_8393-14.jpg

Könnun

Ætlar þú til útlanda í sumar?

Sjá niðurstöður
Sjá allar kannanir

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Innskráning