Heimsfrægð eða dauði

Segja Helgarninr tveir sem staðið hafa fyrir Helganum vikulegum netspjallþætti. Fyrsti þáttur þeirra félaga fór í loftið 1.
Júlí 2009. Í dag er þáttur nr. 30 að fara í spilun. Aðspurðir hvort þeir hafi átt von á að gera 30 þætti
í byrjun. Segja þeir, já alveg eins við renndum blint í sjóinn. Til að byrja með var hugmyndin að koma með nýja sýn á
það sem er að gerast. Við teljum að það hafi tekist, okkur langaði ekki að vera algjörlega strípaðir fyrir sjónvarpið.
Í þættinum sitja nafnarnir Helgi Hrafn og Helgi Steinar Halldórssynir í sófanum og fara yfir allt það helsta sem er að gerast, í
bæjarlífinu á Akureyri. Þeim er ekkert heilagt, þeir skoða líka skemmtilegt efni af netinu og einnig efni sem þeir fá sent frá
aðdáendum þáttarins. Við tölum mikið í kross, endurtökum hvorn annan og höfum mjög gaman að þessu. Upphaf Helgans má rekja
til þess þegar Helgi Hrafn sýndi Helga Steinari netþáttinn Diggnation og þá fengum þeir félagar þá flugu í hausinn að
gera video blog. Segja þessir hressu strákar sem hafa verið vinir í mörg ár. Þeir félagar nota frímtíma sinn til að skipuleggja og
skjóta þættina.
Spila Helgann
Hafir þú hefur áhuga á að senda Helganum efni eða auglýsa í þættinum þá endilega hafðu samband.

