Haukar lögðu Þór á heimavelli

Körfuboltalið Hauka og Þórs mættust í hörkuspennandi leik í 17. umferð fyrstu deildar karla á föstudagskvöldið. Var þetta síðasti heimaleikur Þórs á tímabilinu.
Haukar náðu forystunni strax á þriðju mínútu og héldu henni allan leikinn. Liðin voru þó nokkuð jöfn og fór munurinn mest upp í 16 stig, 74-58. Lokatölur leiksins urðu 89-81 Haukum í vil.
Páll Halldór Kristinsson var besti maður Þórs, skoraði 30 stig og var með 86% tveggja stiga nýtingu. Á eftir honum kom Baldur Már Stefánsson sem skoraði 12 stig.
Í liði Hauka var það Semaj Inge sem skoraði flests stig, 29 en var þó aðeins með 36% tveggja stiga nýtingu. Hann er nýr í liði Hauka en spilaði áður með KR.
Með þessum sigri tryggðu Haukar sér sæti í úrslitakeppni fyrstu deildar karla.
KFÍ sitja á toppi deildarinnar og hafa þegar tryggt sér sigurinn jafnvel þó svo að enn séu tveir leikir eftir. Þetta
þýðir að KFÍ mun spila Iceland Express deildinni á næsta tímabili.


