Landpósturinn

Landpóstur - Fréttavefur Fjölmiðlanema

Fréttir

Haukar lögðu Þór á heimavelli

Elvar Þór og Semaj Inge berjast um boltann
Elvar Þór og Semaj Inge berjast um boltann

Körfuboltalið Hauka og Þórs mættust í hörkuspennandi leik í 17. umferð fyrstu deildar karla á föstudagskvöldið. Var þetta síðasti heimaleikur Þórs á tímabilinu.

Haukar náðu forystunni strax á þriðju mínútu og héldu henni allan leikinn. Liðin voru þó nokkuð jöfn og fór munurinn mest upp í 16 stig, 74-58. Lokatölur leiksins urðu 89-81 Haukum í vil.

Páll Halldór Kristinsson var besti maður Þórs, skoraði 30 stig og var með 86% tveggja stiga nýtingu. Á eftir honum kom Baldur Már Stefánsson sem skoraði 12 stig.

Í liði Hauka var það Semaj Inge sem skoraði flests stig, 29 en var þó aðeins með 36% tveggja stiga nýtingu. Hann er nýr í liði Hauka en spilaði áður með KR.

Með þessum sigri tryggðu Haukar sér sæti í úrslitakeppni fyrstu deildar karla.
KFÍ  sitja á toppi deildarinnar og hafa þegar tryggt sér sigurinn jafnvel þó svo að enn séu tveir leikir eftir. Þetta þýðir að KFÍ mun spila Iceland Express deildinni á næsta tímabili.



Mynd augnabliksins

img_4647.jpg

Könnun

Ætlar þú að lesa Rannsóknarskýrsluna?

Sjá niðurstöður
Sjá allar kannanir

Teljari

Í dag: 8
Samtals: 171887

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Innskráning