Landpósturinn

Landpóstur - Fréttavefur Fjölmiðlanema

Fréttir

Handbolti: Akureyri sigraði Gróttu

Leikmenn Akureyrar fagna sigri
Leikmenn Akureyrar fagna sigri
Akureyri Handboltafélag mætti Gróttu frá Seltjarnarnesi í Íþróttahöllinni á Akureyri í gærkvöldi, í leik sem endaði með yfirburðar sigri heimamanna. Fyrsta mark leiksins kom á fimmtu mínútu þegar Jónatan Þór Magnússon skoraði fyrir Akureyri úr víti og þegar um tíu mínútur voru liðnar af fyrri hálfleik voru Akureyringar komnir með fjögurra marka forskot á Gróttu.  Forysta heimamanna hélst allt til leiksloka en leikmenn Gróttu náðu að minnka markamun í tvö mörk þegar tíu mínútur voru eftir af fyrri hálfleik. Akureyringar spýttu þá í lófana og staðan í leikhlé 17-10 þeim í vil.
Í seinni hálfleik náði Akureyri mest 16 marka mun, 30-14, en Grótta, sem virtist eiga erfitt  uppdráttar allan leikinn,  náði að minnka hann niður í 14 mörk. Staðan í leikslok, 33-19, fyrir heimamenn.

Þrjú gul spjöld litu dagsins ljós í leiknum, öll í fyrri hálfleik. Oddur Gretarsson, markahæsti leikmaður Akureyrar með níu mörk í leiknum,  og Árni Þór Sigtryggsson, sem einnig var kosinn maður leiksins, fengu sitthvort spjaldið og þriðja spjaldið fékk svo Halldór Ingólfsson úr Gróttu. Einnig fengu sex leikmenn að hvíla sig í tvær mínútur á bekknum.

Næsti leikur Akureyrar Handboltafélags er áætlaður fimmtudaginn 18. febrúar kl. 18.30 þegar liðið heimsækir Stjörnuna.




- RAH



Mynd augnabliksins

img_8694.jpg

Könnun

Hvað heillar þig mest í bíó?

Sjá niðurstöður
Sjá allar kannanir

Teljari

Í dag: 55
Samtals: 164052

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Innskráning