Landpósturinn

Landpóstur - Fréttavefur Fjölmiðlanema

Fréttir

Grímsstaðir á Fjöllum

Ljósmynd: Bergur H. Bergsson
Ljósmynd: Bergur H. Bergsson
Sveitarfélagið Norðurþing íhugar nú að kaupa jörðina Grímsstaði á Fjöllum með láni frá Huang Nubo og leigja honum hana síðan. Sveitarfélagið myndi þá eiga jörðina á móti ríkinu sem á fjórðungshlut. Kaupsamningur milli kínverska fjárfestisins Huang Nubo og landeigenda Grímsstaða á Fjöllum hljóðaði upp á 800 milljónir króna fyrir 72 prósenta hlut í jörðinni. Ríkið á 25 prósent og þá eru 3 prósent í eigu einstaklinga á svæðinu.

Ögmundur Jónasson, innanríkisráðherra, synjaði sem kunnugt er kaupunum staðfestingar en borgarar ríkja utan EES þurfa slíkt samþykki á grundvelli laga um eignarrétt og afnotarétt fasteigna.

Í framhaldinu sótti Nubo um undanþágu hjá iðnaðarráðherra á grundvelli nýrra laga um ívilnanir vegna nýfjárfestinga vegna langtímaleigu á Grímsstöðum í því skyni að reisa þar lúxushótel, golfvöll og fleira.

Ekki hefur verið tekin ákvörðun um umsóknina í iðnaðarráðuneytinu, en nefndin sem fjallar um hana fundaði á fimmtudag í síðustu viku og framhaldi af því var ritað bréf til Nubos þar sem óskað var eftir frekari upplýsingum.

Bergur Elías Ágústsson, bæjarstjóri Norðurþings, er í Kína, þangað fór hann aðfaranótt mánudags og svo til Peking til að funda með Huang Nubo. Eftir því sem fréttastofa kemst næst ganga áformin varðandi Grímsstaði út á að Nubo láni sveitarfélaginu Norðurþingi fyrir kaupunum á jörðinni, leigi hana síðan af sveitarfélaginu og leigutekjurnar fari síðan í að greiða upp lánið. Þá er líka rætt um að leigan verði staðgreidd nokkur ár fram í tímann. Þetta er þó allt háð því að iðnaðarráðuneytið gefi grænt ljós, eins og áður segir.


Mynd augnabliksins

20110224-_mg_8399-35.jpg

Könnun

Ætlar þú til útlanda í sumar?

Sjá niðurstöður
Sjá allar kannanir

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Innskráning