Landpósturinn

Landpóstur - Fréttavefur Fjölmiðlanema

Fréttir

Grátlegt jafntefli gegn Serbum

Björgvin Páll varði vel í fyrri hálfleik (Mynd: www.dv.is)
Björgvin Páll varði vel í fyrri hálfleik (Mynd: www.dv.is)

Íslenska landsliðið hafði leikinn gegn Serbum í hendi sér þangað til á síðustu mínútum. Serbar skoruðu fjögur síðustu mörkin og niðurstaðan grátlegt jafntefli 29-29.

Þrátt fyrir að mikið hafi verið um mistök í upphafi leiks, hafði íslenska liðið yfirhöndina allan fyrri hálfleikinn. Þá varði Björgvin Páll mjög vel og Serbar náðu ekki að skora fyrr en 6 mínútur voru liðnar af leiknum. Guðjón Valur Sigurðsson var markahæstur Íslendinga í hálfleiknum, með 7 mörk. Nokkuð var um brottvísanir og mörg færi ónýtt hjá báðum liðum.

 

Stóran hluta seinni hálfleiks hélt íslenska liðið forskotinu. Hreiðar Leví varði vel og Arnór Atlason stóð sig frábærlega í skyttustöðunni. Síðustu mínútur leiksins voru æsispennandi, Serbar náðu að minnka muninn í eitt mark þegar mínúta var eftir af leiknum og jafna þegar nokkrar sekúndur lifðu leiks. Þegar leiktíminn var runninn út fengu Íslendingar víti sem serbneski markvörðurinn varði og niðurstaðan því jafntefli, 29-29.

 

Þótt leikurinn í kvöld hafi ekki farið eins og flestir landsmenn hafi óskað, er þó eitt stig í höfn. Næsti leikur liðsins er á fimmtudaginn, gegn Austurríkismönnum. Áfram Ísland!

 

- HH



Mynd augnabliksins

img_8691.jpg

Könnun

Ætlar þú að lesa Rannsóknarskýrsluna?

Sjá niðurstöður
Sjá allar kannanir

Teljari

Í dag: 10
Samtals: 174392

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Innskráning