Landpósturinn

Landpóstur - Fréttavefur Fjölmiðlanema

Fréttir

Golden Globe verðlaunahátíðin – Ágrip og verðlaunin í ár.

Ricky Geravis - Kynnir Golden Globe í ár.
Ricky Geravis - Kynnir Golden Globe í ár.

Golden Globe verðlaunahátíðin var haldin seinastliðin sunnudag, í 67 skipti við miklar dýrðir eins og endranær. Golden Globe verðlaunin, sem voru fyrst veitt árið 1944, eru afhent ár hvert til að heiðra það besta sem komið hefur fram í sjónvarpi og kvikmyndum árið áður bæði í Bandaríkjunum og öðrum löndum, og til að besta sjónvarpsefnið og bestu kvikmyndirnar fái almenna athygli. Að baki verðlaununum standa samtök erlendra blaðamanna í Hollywood HFPA (Hollywood Foreign Press Association).

 

Hátíðin, sem fer fram með athöfn ásamt því að gestir hátíðarinnar snæða kvöldmat, er ein af aðalverðlaunahátíðunum í verðlaunatíð kvikmyndaiðnaðarins ár hvert, sem nær hámarki með Óskarsverðlaunum.

 

Frá árinu 1961 hefur Golden Globe hátíðin verið haldin í Beverly Hilton hótelinu í Beverly Hills þar sem að frægustu stjörnur Hollywoods í sjónvarpi og kvikmyndum koma saman til að taka á móti Gullna hnettinum (eins og verðlaunagripurinn hefur verið nefndur á íslensku) og til að fylgjast með öðrum stjörnum fá Hnöttinn afhentann.

 

Verðlaunin eru veitt í 26 flokkum þar sem þeir helstu eru:

 

Besta kvikmyndin – Drama.

Besta kvikmyndin – Söng- eða gamanleikur.

Besti leikstjóri.

Besti leikari – Drama.

Besti leikari – Söng- eða gamanleikur.

Besta leikkona – Drama.

Besta leikkona – Söng- eða gamanleikur.

Besta teiknimyndin.

Besta sjónvarpsserían – Drama.

Besta sjónvarpsserían – Söng- eða gamanleikur.

 

Leikkonan Meryl Streep hefur unnið Gullna hnöttinn oftast í gegnum tíðina eða 7 sinnum og er hún líka sú leikkona sem hefur fengið flestar tilnefningar til verðlaunanna eða 25 sinnum. Á eftir henni koma leikararnir Angela Lansbury og Jack Nicholson með 6 verðlaun og leikarinn Jack Lemmon með 22 tilnefningar.

 

Á verðlaunahátíðinni í ár var aðalkynnirinn breski gamanleikarinn Ricky Geravis sem er best þekktur hér á landi fyrir hlutverk sitt sem yfirmaðurinn óþolandi í bresku gamanþáttunum The Office. Skiptar skoðarnir hafa verið á frammistöðu hans í bandarískum fjölmiðlum, sumir hafa lofað hann fyrir frammistöðu sína en aðrir lastað fyrir að ganga of langt í gríninu.

 

Eitthvað hlýtur Geravis samt að hafa gert rétt, því að í ár horfðu 16,9 milljónir Bandaríkjamanna á verðlaunahátíðina í beinni útsendingu sem er 14% aukning í áhorfi frá því í fyrra. Nær þessi tala þó ekki að slá út met hátíðarinnar sem er frá árinu 2004 en þá horfðu 26,8 milljónir Bandaríkjamanna á útsendingu, og er þá ekki verið að telja með alla þá sem hafa horft á hátíðina beint með aðstoð netsins eða sjónvarpsstöðva erlendis frá.

 

En metið fyrir lélegasta áhorfið á síðari tímum hlýtur að vera árið 2007 þegar að handritshöfundaverkfallið í Hollywood var í algleymingi, hátíðin það árið var lítið annað en blaðamannafundur, þá horfðu líka eingöngu 6 milljónir Bandaríkjamanna á hátíðina.

Í ár var sigurvegari hátíðarinnar framtíðar útópíu myndin Avatar en hún vann verðlaunin sem besta kvikmyndin – drama og leikstjóri myndarinnar James Cameron vann verðlaunin sem besti leikstjórinn.

 

Af öðrum sigurvegurum kvöldsins voru þeir helstu:

 

The Hangover, besta kvikmyndin – söng- eða gamanleikur.

Jeff Bridges – Crazy Heart, besti leikarinn – drama.

Sandra Bullock – The Blind Side, besta leikkonan – drama.

Robert Downey Jr. – Sherlock Holmes, besti leikarinn – söng- eða gamanleikur.

Meryl Streep – Julie & Julia, besta leikkonan – söng- eða gamanleikur.

Upp (e. Up), besta teiknimyndin.

Mad Men, besta sjónvarpsserían – drama.

Glee, besta sjónvarpsserían – söng- eða gamanleikur.

 

Fullkominn lista yfir tilnefningar til verðlaunanna og sigurvegaranna í ár má sjá hér http://www.moviefone.com/golden-globes/nominee-winner

 

 

KBS



Mynd augnabliksins

img_8670.jpg

Könnun

Ætlar þú að lesa Rannsóknarskýrsluna?

Sjá niðurstöður
Sjá allar kannanir

Teljari

Í dag: 8
Samtals: 171887

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Innskráning