Góð glæpasaga , Myrká

Nýverið las ég bókina Myrká sem mér var gefin í jólagjöf síðustu jól, en þessi skáldsaga kom út seinasta haust og var afar vinsæl jólagjöf það árið.
Myrká er glæpasaga eftir hinn vinsæla höfund Arnald Indriðason, þetta er tólfta skáldsaga hans og þess má geta að hann hefur selt yfir 5 milljónir eintaka af bókum sínum á mismunandi tungumálum víða um heim ásamt því að fá hin ýmsu verðlaun og viðurkenningar á alþjóðlegum vettvangi fyrir verk sín.Bókin fjallar um rannsókn á morði, ungur maður að nafni Runólfur er myrtur, nánar tiltekið skorinn á háls í Þingholti í Reykjavík. Lögreglukonan Elínborg og aðstoðarmaður hennar Siguróli taka að sér að rannsaka málið. Engin ummerki um átök eru í íbúðinni en hins vegar finnst óminnis- og nauðgunarlyfið Rohypnol í jakka hins látna og vekur það grunsemdir um að ekki sé allt með felldu. Í íbúðinni finnst einnig kvenmanns sjal með sterkri lykt. Bakgrunnur Runólfs er kannaður og kemur í ljós að hann á sér skuggalega fortíð og er þekktur fyrir að nota þetta lyf sem fannst í jakkavasa hans til þess að nauðga ungum konum. Runólfur var frá litlu þorpi út á landi og kemst Elínborg af því að ung stúlka hafi fyrirfarið sér í þorpinu þegar Runólfur bjó þar, eitthvað finnst Elínborgu gruggugt við það og ákveður að rannsaka málið til hlítar. Allar þessar vísbendingar sem Elínborg og Siguróli hafa í höndunum leiða þau fljótt á slóð dulins ofbeldis og hrottalegra sálarmorða. Elínborg finnur eiganda sjalsins og heldur að þar sé morðinginn fundinn eða einhver nátengdur eiganda sjalsins. En lyktarskyn Elínborgar leiðir hana að sannleika málsins beint og óbeint.
Að mínu mati er þetta klassísk glæpasaga, spennandi frásögn sem heldur manni við lesturinn. Ég mæli hiklaust með henni, hún er
hin besta afþreying.


