Góð auglýsing fyrir Akureyri

Akureyri hefur alltaf verið talinn fallegur bær og eru blaðamenn ferðatímaritsins Lonely Planet sammála því. Í febrúartímariti blaðsins er bærinn settur á stall með borgum eins og Róm, París og Madrid. Akureyri hreppir fjórða sæti af sex, af þeim stöðum sem tímaritið mælir með að fólk sem þegar hefur ferðast til alþekktra áfangastaða ættu að heimsækja.
Í umfjöllun blaðsins er meðal annars fjallað um hversu afslöppuð kaffihús bæjarins eru. Eins er minnst á minjasafnið í gamla innbænum og miðnæturgólfið. Einnig er fjallað um næturlífið á Akureyri og mælt er með að fá sér bita á Bautanum.
Þetta er góð auglýsing fyrir Akureyri og ekki er leiðinlegt að höfundur greinarinnar kemst að þeirri niðurstöðu að Akureyri er fallegri bær en Reykjavík.


