Landpósturinn

Landpóstur - Fréttavefur Fjölmiðlanema

Fréttir

Gervais kynnir aftur á Golden Globes

Í fyrra gærkvöldi fór Golden Globes verðlaunahátíðin fram í 69. skipti.  Það sem flestum kom á óvart er að þriðja árið í röð hefur breski uppistandarinn Ricky Gervais verið fenginn til að kynna hátíðina.

Í fyrra olli hann miklum usla fyrir ljótt orðbragð og illa séða brandara á kostnað þeirra sem sátu í salnum, ekki sé minnst á það að hafa með sér bjór upp á svið.

Fjölmiðlum fannst hann vanvirða hátíðina sem til þessa hefur alltaf verið mjög formleg. Aftur á móti hækkaði áhorf NBC um heil 14% á milli ára, og talið er að kynningar Gervais eigi stærstan hlut í því. Skemmtanagildi hátíðarinnar hefur aukist um heilan helling með því að hafa líflegri kynni, og sýnir kvikmyndastjörnurnar í mannlegu ljósi.

Umfjöllun fjölmiðla hefur líka snert á því að mögulega séu ameríkanar ekki alveg tilbúnir í breskan húmor á viðburði sem þessa.

Þess má geta að Gervais var tilfnendur til Emmy verðlauna fyrir frammistöðu sína á Golden Globes 2011.



Mynd augnabliksins

20110217-_mg_8116-16.jpg

Könnun

Hvernig ferðu í skólann?

Sjá niðurstöður
Sjá allar kannanir

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Innskráning