Guðjón Valur skrifar undir samning við Kiel

Kiel hefur lengi verið eitt besta félagslið í heimi og hefur unnið þýsku deildina sextán sinnum, síðast árið 2010, og meistaradeild Evrópu tvisvar sinnum. Hjá Kiel mun Guðjón hitta fyrir tvo Íslendinga, þjálfarann Alfred Gíslason og leikmanninn Aron Pálmason. Kiel er fjórða þýska liðið sem Guðjón leikur með á ferlinum og í annað sinn sem að Alfreð er þjálfari hans hjá þýsku liði.
Guðjón er 32 ára gamall og afrekaði það á dögunum að verða fjórði markahæsti leikmaðurinn á ný yfirstaðnu Evrópumóti í handbolta og vera valinn í úrvalslið mótsins. Það er því greynilegt að þessi frábæri handboltamaður á nóg inni í atvinnumennskunni og virðist ekkert ætla að stöðva velgengni hans.


