Landpósturinn

Landpóstur - Fréttavefur Fjölmiðlanema

Fréttir

Gamlar snyrtivörur óheilsusamlegar

Svona lítur merkið út á snyrtivörum sem segir til hversu lengi má nota þær
Svona lítur merkið út á snyrtivörum sem segir til hversu lengi má nota þær

Samkvæmt könnun sem var gerð af Debenhams verslunarkeðjunni meðal eittþúsund kvenna í Bretlandi um snyrtivörugeymslu geyma konur snyrtivörur sínar of lengi en það er talið óheilsusamlegt.

Konur eiga það á hættu að veikjast og skaddast í andliti vegna þess að þær geyma snyrtivörur langt framyfir þann tíma sem þær eru útrunnar. Er það vegna þess að gamlar snyrtivörur eru sagðar gróðrastía fyrir bakteríur sem geta valdi skinnangri og jafnvel sýkingum.

Kom fram í könnunni að fæstar breskar konur vissu um að samkvæmt reglum Evrópusambandisins þá ber framleiðendum skylda til þess að setja neðan á dósirnar með snyrtivöru sinni merki um hversu lengi má nota þær eftir opnun. Merkið er mynd af opinni dós og sá fjöldi mánaða sem er óhætt að geyma vöruna eftir opnun.

Samkvæmt könunni sögðu meirihluti kvenanna, eða heil 68% að þær fengju sér aðeins nýja vöru eftir að sú gamla væri búin sama hversu langan tíma það tæki. Sérstaklega virðast augnskuggar og kinnalitur vera langlífir í snyrtitöskum kvenna. Reyndist meðal geymslutíminn vera mörg ár í stað þeirra 18-24 mánuða sem er mælt með. Einnig virðast varalitir fá að lifa langt um aldur fram. Voru þeir geymdir að meðaltali í heilan áratug, en mælt er með 12-24 mánuðum. Kemur fram að föðrunarsvampar eru sérstaklega bakteríusæknir ef þeir eru ekki þvegnir reglulega. Þá getur verið varasamt að deila snyrtivörum með fjölskyldum og vinum.

Vert er að benda á að Debenhams hefur hagnað á því að konur skipti sem örast um snyrtivörur.

KBS.



Mynd augnabliksins

img_4613.jpg

Könnun

Ætlar þú að lesa Rannsóknarskýrsluna?

Sjá niðurstöður
Sjá allar kannanir

Teljari

Í dag: 8
Samtals: 171887

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Innskráning