Landpósturinn

Landpóstur - Fréttavefur Fjölmiðlanema

Fréttir

Gamalt og gott úr DVD skápnum

Eitt af meistaraverkum kvikmyndasögunnar: The Shawshank Redemption
Eitt af meistaraverkum kvikmyndasögunnar: The Shawshank Redemption
Að þessu sinni varð fyrir valinu meistaraverkið The Shawshank Redemption en sú kvikmynd er jafnan talin eitt allra besta kvikmyndaverk sem komið hefur frá Hollywood framleiðsluvélinni. Kvikmyndin er byggð á smásögu eftir Stephen King sem ber nafnið Rita hayworth and Shawshank Redemption en kvikmyndin er frá árinu 1994 og skartar Tim Robbins og Morgan Freeman í aðalhlutverkum. Kvikmyndin var á sínum tíma tilnefnd til sjö óskarsverðlauna en það er þó skömm að segja frá því að myndin fékk engin verðlaun á hátíðinni og því enn eitt dæmið um óskiljanlegar ákvarðanir Óskarsnefndarinnar.           

Myndin hefst á því að ungur bankastarfsmaður að nafni Andy Dufresne (Tim Robbins) er sakaður um að hafa drepið eiginkonu sína og ástmann hennar en hann neitar því og segist saklaus. Að lokum er hann dæmdur í lífstíðarfangelsi. Upp frá því er hann sendur í Shawshank fangelsið til þess að afplána sinn dóm en þetta gerist árið 1947.

Í fangelsinu hittir Andy svertingja að nafni Red (Morgan Freeman) og fljótlega hefst mikill vinskapur með þeim. Í fangelsinu þarf Andy að þola mikinn hrottaskap frá föngunum og fyrstu árin þarf hann að standa undir barsmíðum og nauðgunum frá nokkrum föngum. Andy nær þó að fá spillta fangaverðina með sér í lið með því að hjálpa þeim við fjármálin. Eftir það er hann látinn vera af hinum föngunum en önnur vandamál banka þó upp á hjá Andy og hann þarf að horfast í augu við stærsta vandamálið: Að lifa af innan fangelsisveggjanna.

Að mínu mati er þetta ein allra besta kvikmynd fyrr og síðar. Því til stuðnings tel ég að engri annarri mynd hafi tekist að segja sögu af manneskjum jafn vel og er gert í The Shawshank Redemption. Þó svo að sagan fjalli um Andy þá fáum við einnig að kynnast samföngum hans og þá sérstaklega Red og er kostulegt að sjá hversu vel leikstjóranum og handritshöfundinum (Frank Darabont) tekst að samtvinna þessum hliðarsögum (sub-plots) við söguna af Andy. Leikurinn og kvikmyndatakan eru stórkostleg og söguþráðurinn og fléttan koma skemmtilega á óvart. Það er í raun ekki hægt að lýsa hversu mikil upplifun er að horfa á þessa kvikmynd og því hvet ég alla sem ekki hafa séð hana að hlaupa út á næstu myndbandsleigu og leigja þessa kvikmynd, ég þori að fullyrða að sá hinn sami verði ekki fyrir vonbrigðum þar sem þetta er eitt af meistaraverkum kvikmyndasögunnar.


Mynd augnabliksins

img_0490.jpg

Könnun

Ætlar þú að lesa Rannsóknarskýrsluna?

Sjá niðurstöður
Sjá allar kannanir

Teljari

Í dag: 4
Samtals: 174201

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Innskráning