Gamalt og gott úr DVD skápnum

Myndin hefst á því að ungur bankastarfsmaður að nafni Andy Dufresne (Tim Robbins) er sakaður um að hafa drepið eiginkonu sína og ástmann hennar en hann neitar því og segist saklaus. Að lokum er hann dæmdur í lífstíðarfangelsi. Upp frá því er hann sendur í Shawshank fangelsið til þess að afplána sinn dóm en þetta gerist árið 1947.
Í fangelsinu hittir Andy svertingja að nafni Red (Morgan Freeman) og fljótlega hefst mikill vinskapur með þeim. Í fangelsinu þarf Andy að þola mikinn hrottaskap frá föngunum og fyrstu árin þarf hann að standa undir barsmíðum og nauðgunum frá nokkrum föngum. Andy nær þó að fá spillta fangaverðina með sér í lið með því að hjálpa þeim við fjármálin. Eftir það er hann látinn vera af hinum föngunum en önnur vandamál banka þó upp á hjá Andy og hann þarf að horfast í augu við stærsta vandamálið: Að lifa af innan fangelsisveggjanna.
Að mínu mati er þetta ein allra besta kvikmynd fyrr og síðar. Því til stuðnings tel ég að engri annarri mynd hafi tekist að segja sögu af manneskjum jafn vel og er gert í The Shawshank Redemption. Þó svo að sagan fjalli um Andy þá fáum við einnig að kynnast samföngum hans og þá sérstaklega Red og er kostulegt að sjá hversu vel leikstjóranum og handritshöfundinum (Frank Darabont) tekst að samtvinna þessum hliðarsögum (sub-plots) við söguna af Andy. Leikurinn og kvikmyndatakan eru stórkostleg og söguþráðurinn og fléttan koma skemmtilega á óvart. Það er í raun ekki hægt að lýsa hversu mikil upplifun er að horfa á þessa kvikmynd og því hvet ég alla sem ekki hafa séð hana að hlaupa út á næstu myndbandsleigu og leigja þessa kvikmynd, ég þori að fullyrða að sá hinn sami verði ekki fyrir vonbrigðum þar sem þetta er eitt af meistaraverkum kvikmyndasögunnar.


