Landpósturinn

Landpóstur - Fréttavefur Fjölmiðlanema

Fréttir

Gætu billjón plánetur hýst líf ?

Fjarlægir heimar
Fjarlægir heimar
Ef þú ert upptekinn við að telja hversu margar plánetur gætu mögulega hýst líf af einhverju tagi í okkar eigin vetrarbraut, gætu nýjar upplýsingar frá vísindamönnum hvatt þig örlítið áfram, því nýlega telja þeir að þær plánetur geti skipt biljónum.

Stjörnufræðingar sem vinna hjá European Southern Observatory's (ESO) HARPS instrument reikna með að innan sólkerfis okkar gætu verið 10 billjón grjótgerðar plánetur svipaðar að vexti og jörðin, sem ganga um rauðdverga stjörnur innan þeirra lífvænlegu marka sem þarfnast til að vera hvorki of heit né köld. Lífvænlegar plánetur eru þær plánetur sem geta geymt vatn án þess að það gufi upp eða haldist einungis frosið.

Pláneturnar sem gera stjörnufræðingana svo æsta eru svokallaðar ofur jarðir, í því samhengi að massi þeirra geta haft tíu sinnum meiri massa en jörðin okkar. Það er mikilvægt sérkenni út af því að sumir vísindamenn trúa að ofur jarðir þessar hafi betri eiginleika á að hýsa líf en plánetur á stærð við jörðina.

Þó svo að vísindamenn hafi áður gengið að því vísu að hver stjarna í vetrarbrautinni okkar hafi að minnsta kosti eina plánetu sem gengur um braut þeirra, þá er þetta í fyrsta skiptið sem þeir hafa náð góðri talningu á því hversu margar ofur jarðir gætu í raun verið til.

Stór hluti þessara heillvænlegu pláneta eru tiltörulega nærstaddir nágrannar. Skoðun vísindamannana gefur til kynna að það eru um 100 ofur jarðir í lífvænlegum aðstæðum í einungis 30 ljósára fjarlægð frá okkur.

Næsta skref fyrir ESO teimið er að skilgreina fleiri ofur jarðir með aðstoð HARPS ásamt öðrum tækjum, og rannsaka andrúmsolft þeirra í leit að frekari svörum og lífi.



Mynd augnabliksins

img_8692.jpg

Könnun

Hvernig ferðu í skólann?

Sjá niðurstöður
Sjá allar kannanir

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Innskráning