Landpósturinn

Landpóstur - Fréttavefur Fjölmiðlanema

Fréttir

Fyrstu 4 leikjum Meistaradeildar Evrópu lokiđ – Real Madrid úr leik

Ronaldo grćtur líklega aftur í kvöld en hann er úr leik í Meistaradeildinni ţetta áriđ ásamt félögum sínum í Real Madrid
Ronaldo grćtur líklega aftur í kvöld en hann er úr leik í Meistaradeildinni ţetta áriđ ásamt félögum sínum í Real Madrid

4 leikir fóru fram í 16 liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu í kvöld og í gær.  Í gær mættust Fiorentina og Bayern Munchen ásamt Arsenal og Porto. Í kvöld áttust svo við Real Madrid og Lyon ásamt Manchester United og AC Milan.

Á Ítalíu þurftu heimamenn í Fiorentina að glíma við Bayern Munchen og  vinna upp eins marks forystu Bayern Munchen þar sem að fyrri leiknum lauk með 2-1 sigri Bayern Munchen.  Fiorentina byrjaði vel og skoruðu fyrstu tvö mörkin en það voru þeir Juan Manuell Vargas og Stevan Jovetic sem sáu um það. En Þjóðverjar eru ekki þekktir fyrir að gefast upp og minnkaði fyrirliði þeirra Mark Van Bommel muninn í 2-1. Þetta leit svo vel út fyrir Fiorentina þegar að hinn 19 ára Jovetic skoraði sitt annað mark og kom heimamönnum yfir 3-1 á 64. mínútu. Adam var þó ekki lengi í paradís því einni mínútu síðar skoraði Robben fallegasta mark leiksins sem dugði Bayern til að komast áfram á fleiri mörkum skoruðum á útivelli.

Á Englandi mættust svo Arsenal og Porto, Porto hafði unnið fyrri leikinn 2-1 og því mátti búast við spennandi leik. Sú varð ekki raunin því Arsenal lék við hvern sinn fingur og sigraði 5-0 og skoraði Nicklas Bendtner meðal annars þrennu. Hin tvö mörkin skoruðu svo Emmanuel Eboue og Samir Nasri. Því fór Arsenal áfram samanlagt 6-2.

Í kvöld mættu svo Spænsku risarnir Real Madrid liði Lyon á heimavelli Real Madrid. Real hefur að tefla ótrúlegu liði, með dýrasta knattspyrnumann heims Christiano Ronaldo í broddi fylkingar. Lyon hafði unnið fyrri leikinn óvænt 1-0 og því þurftu Real Madrid að vinna með tveimur mörkum. Það byrjaði vel fyrir Madrídinga því áðurnefndur Ronaldo skoraði fyrsta markið á 5 mínútu leiksins. Real hélt áfram að sækja en á 76. mínútu jafnaði Miralem Pjanic metin og endaði leikurinn 1-1. Það þýðir að Lyon fer áfram samanlagt 2-1 og Real Madrid sitja eftir með sárt ennið. Framtíð þjálfara Real Madrid, Manuel Pellegrini, er í uppnámi eftir þetta tap en fastlega má gera ráð fyrir því að honum verði sagt upp.

Að lokum bauð Manchester United David Beckham og félögum hans í AC Milan í heimsókn á Old Trafford. Ekki var mikil gestrisni á meðan leik stóð því United rúllaði yfir Mílanó menn 4-0. Þeir fara samanlagt áfram 7-2 þar sem fyrri leikurinn fór 3-2 fyrir Manchester menn. Wayne Rooney skoraði tvö mörk í kvöld og það voru svo Ji Sung Park og Darren Fletcher sem bættu við mörkum fyrir Rauðu Djöflana.

Það eru því Bayern Munchen, Arsenal, Lyon og Manchester United sem halda áfram í 8 liða úrslit Meistaradeildarinnar.



Mynd augnabliksins

p9301060.jpg

Könnun

Ćtlar ţú ađ lesa Rannsóknarskýrsluna?

Sjá niđurstöđur
Sjá allar kannanir

Teljari

Í dag: 8
Samtals: 171887

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Innskráning