Landpósturinn

Landpóstur - Fréttavefur Fjölmiðlanema

Fréttir

Fúlar á móti

Í gærkvöldi fór ég að sjá sýninguna Fúlar á móti eftir Jenny Eclair og Judith Holder í leikhúsinu á Akureyri. Leikritið er uppfært af Gísla Rúnari Jónssyni og í leikstjórn Maríu Sigurðardóttur sem er jafnframt leikhússtjóri. Leikkonurnar eru svo ekki af verri endanum en það eru þær Edda Björgvinsdóttir, Helga Braga Jónsdóttir og Björk Jakobsdóttir sem fara með hlutverkin í þessu bráðfyndna leikriti, eða kannski væri nær að kalla þetta uppistand.

Þessar þjóð þekktu leikkonur eru að stíga á stokk saman í fyrsta sinn og eru einnig allar að sýna í fyrsta sinn fyrir Leikfélag Akureyrar. Ég held bókstaflega að aldrei áður hafi ég farið í leikhús þar sem svona mikið er hlegið, hláturinn bókstaflega rofnaði aldrei. Þrátt fyrir að fyrir liggi handrit að sýningunni, þá þykir mér líklegt að þær hafi haft talsvert frelsi í sambandi við texta. Þær voru í miklum gír í gær og virtust ekki aðeins áhorfendur skemmta sér konunglega því þær áttu einnig oft erfitt með sig. Það var sem sagt mikið hlegið og mikið klappað í gær þegar að þær gerðu körlunum í salnum það loksins ljóst hvers vegna eiginkonur, mæður og systur eru eins og þær eru þegar að á síðara skeiðið er komið. Þær voru allar frábærar á sviðinu, þó fannst mér Edda Björgvinsdóttir bera af. Þetta er sýning sem að ég get mælt með við alla sem að vilja eiga skemmtilega kvöldstund.


Mynd augnabliksins

img_8664.jpg

Könnun

Ætlar þú að lesa Rannsóknarskýrsluna?

Sjá niðurstöður
Sjá allar kannanir

Teljari

Í dag: 5
Samtals: 174202

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Innskráning