Friðrik V. allur
Fram kemur á www.mbl.is að eigendum hafi ekki þótt það góður kostur að draga úr gæðum staðarins, en það hefði verið mögulegt í stöðunni. Staðurinn var opnaður fyrir níu árum og var hann þá staðsettur á Strandgötu, en var svo fluttur í núverandi hús árið 2007. Mikill samdráttur varð á fyrstu mánuðum ársins og töldu eigendur að ekki væri líklegt að það myndi breytast á næstu mánuðum og því væri þetta það eina í stöðunni.


