Landpósturinn

Landpóstur - Fréttavefur Fjölmiðlanema

Fréttir

Freyvangsleikhúsið frumsýnir

Föstudaginn 2. október mun Freyvangsleikhúsið frumsýna verkið Memento Mori eftir Hrefnu Friðriksdóttur.

Í verkinu er skyggnst inn í heim fólks sem nýtur þeirrar blessunar – eða er það bölvun? – að geta ekki dáið. Þessar ódauðlegu verur velta fyrir sér lífinu, dauðanum og ódauðleikanum, og brugðið er upp svipmyndum af fortíð þeirra. Þegar á líður koma tengsl þeirra betur í ljós og þar kemur að þær hljóta að taka afstöðu til fortíðarinnar og ódauðleikans. Leikritið er framúrstefnuleg blanda af drama og húmor, heimspekilegum hugleiðingum, rómatík og fáránleika.

Leikstjóri er Daníel Freyr Jónsson.

Sýningin byrjar klukkan 20:30 og það kostar litlar 1500 krónur inn.



Mynd augnabliksins

img_8658.jpg

Könnun

Ætlar þú að lesa Rannsóknarskýrsluna?

Sjá niðurstöður
Sjá allar kannanir

Teljari

Í dag: 8
Samtals: 171887

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Innskráning