Landpósturinn

Landpóstur - Fréttavefur Fjölmiðlanema

Fréttir

Föstudagurinn þrettándi - óhappa?

Föstudagurinn þrettándi
Föstudagurinn þrettándi
Nú þegar næsti föstudagur verður föstudagurinn þrettándi svitna margir köldum svita og verða smeikir um að eitthvað óhappa atvik gerist. En er föstudagurinn þrettándi svo mikill óhappa dagur? Þessi gamla mýta hefur svo sannarlega haldist í íslensku samfélagi því óteljandi oft hefur maður heyrt í samfélaginu fólk velta vöngum um hvaða slæmi hlutur muni nú gerast á þennan umtalaða föstudag þrettánda.
Undirrituð viðurkennir að í eitt skiptið var hún ekki alveg sú spenntasta fyrir því að eiga bókað flug föstudaginn þrettánda. En flugið gekk vel og heil kom hún úr fluginu.
Þrettándi hvers mánaðar skiptist á að lenda á vikudögunum og samkvæmt því er því sjöunda hvern mánuð föstudagurinn þrettándi. Þetta gerist því aðeins meira en einu sinni á ári.
En muna lesendur Landpóstsins eftir mörgum óhappa atriðum sem hafa gerst á deginum? Ef svo er væri gaman að fá að heyra af þeim því undirrituð hefur ekki heyrt af svo mörgum. Svo er líka möguleiki að vegna óhappadagsins ógurlega gerist óhöppin frekar því fólk spái of mikið í þeim?

Þetta er pæling dagsins.

Hrefna Sif Jónsdóttir


Mynd augnabliksins

20110309-_mg_9472-1.jpg

Könnun

Hvernig ferðu í skólann?

Sjá niðurstöður
Sjá allar kannanir

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Innskráning