Landpósturinn

Landpóstur - Fréttavefur Fjölmiðlanema

Fréttir

Fimmta umferð spiluð hjá Píludeild Þórs á Akureyri

Í kvöld var fimmta umferð HÞ Lagnadeildarinnar spiluð hjá píludeild Þórs. Tíu leikmenn mættu til leiks og leikið var 301, d inn d út.

Samkvæmt upplýsingum frá talsmanni Píludeildarinnar fóru leikar þannig:

Skipt var í tvo riðla að venju og unnu Bjarni og Hinrik báðir sína riðla og Aðalsteinn og Hrannar urðu  í öðru sæti í sínum riðlum.

Í leik um fyrsta sætið vann Bjarni Sigurðsson Hinrik Þórðarson, 2- 1. Í leik um þriðja sætið vann Aðalsteinn Þorláksson Hrannar Þór Kjartansson, 2 -0.  Kristján Örn Helgason vann Maríu Jóhannesdóttur í leik um fimmta sætið, 2-1 og Arnar Oddsson vann Hjálmar Hauksson í leik um Sjöunda sætið, 2-1.

Bjarni átti hæsta innskotið í kvöld eða 136 stig og Hinrik fæstar pílur til að klára legginn, eða 11 pílur.

Röðin á toppnum  breyttist því lítið og er Bjarni efstur, Hinrik í öðru sæti,  Aðalsteinn  í þriðja og Hrannar í fjórða sæti.  Á miðvikudaginn eftir viku verður spilað Krikket.







Mynd augnabliksins

img_4617.jpg

Könnun

Ætlar þú til útlanda í sumar?

Sjá niðurstöður
Sjá allar kannanir

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Innskráning