Landpósturinn

Landpóstur - Fréttavefur Fjölmiðlanema

Fréttir

Fimm frá Skautafélagi Akureyrar á HM

Olaf Eller, landliðsþjálfari karla í íshokkí tilkynnti í gær endanlegan 23 manna hóp fyrir þáttöku í 2. deild A á heimsmeistaramótinu sem fer fram í Skautahöllinni í Laugardal dagana 12. til 18. apríl.


Skautafélag eiga fimm fulltrúa í liðinu en þeir eru markmaðurinn Ómar Smári Skúlason, varnamennirnir Bjarni Már Jakobsson, Ingvar Þór Jónsson og Orri Blöndal og sóknarmaðurinn Andri Már Mikaelsson. Annar aðstoðarþjálfari Olaf er Josh Gribben sem er einnig þjálfari hjá SA. Ísland mun leika sinn fyrsta leik á mótinu gegn Nýja-Sjálandi fimmtudaginn næstkomandi og leika svo gegn Serbíu, Eistlandi, Spáni og Króatíu.

Landsliðshópur Íslands í íshokkí er þannig skipaður:

Markmenn        

Dennis Hedström  (EHC Bregenzerwald)

Ómar Smári Skúlason  (Skautafélag Akureyrar)

Styrmir Snorrason  (Björninn)

Varnarmenn     

Birkir Árnason  (Björninn)

Björn Már Jakobsson  (Skautafélag Akureyrar)

Ingólfur Tryggvi Elíasson  (Mjölby)

Ingvar Þór Jónsson  (Skautafélag Akureyrar)

Orri Blöndal  (Skautafélag Akureyrar)

Róbert Freyr Pálsson  (Björninn)

Snorri Sigurbjörnsson    (Skautafélag Reykjavíkur)

               

Sóknarmenn    

Andri Már Mikaelsson   (Skautafélag Akureyrar)

Björn Róbert Sigurðarson  (Skautafélag Reykjavíkur)

Brynjar Freyr Þórðarson  (Amager Ishockey)

Emil Alengard    (Mjölby)

Jóhann Már Leifsson     (Niagra Fury)

Jón Benedikt Gíslason   (Amager Ishockey)

Jónas Breki Magnússon               (Amager Ishockey)

Matthías Máni Sigurðarson        (Stjernen)

Ólafur Hrafn Björnsson (Björninn)

Pétur Maack      (Skautafélag Reykjavikur)

Robin Hedström              (Aaseda)

Tómas Tjörvi Ómarsson               (Skautafélag Reykjavíkur)

Úlfar Jón Andrésson      (Björninn)

Aðstoðarþjálfarar liðsins eru David MacIsaac frá Birninum og Josh Gribben frá SA.



Mynd augnabliksins

p9301027.jpg

Könnun

Hvernig ferðu í skólann?

Sjá niðurstöður
Sjá allar kannanir

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Innskráning