Landpósturinn

Landpóstur - Fréttavefur Fjölmiðlanema

Fréttir

Færeyingar koma til Akureyrar í skíðaferð

Hlíðarfjall
Hlíðarfjall
95 skíðaáhugamenn frá Færeyjum komu til Akureyrar um hádegisbil í gær og ætlar þau að dvelja fram á sunnudag. Guðmundur Karl Jónsson forstöðumaður í Hlíðarfjalli segir að það sé margt hægt að gera til þess að fá útlenska skíðamenn til Akureyrar en einnig að þá sé mikilvægt að bjóða upp á beint flug til Akureyar. Guðmundur útilokar það ekki að hugsanlega gæti verið von á fleiri færeyskum skíðaáhugamönnum næsta vetur því hugmyndin er að bjóða upp á þrjár til fórar ferðir, ef úr þessu verður má gera ráð fyrir 300-400 færeyskum skíðaáhugamönnum í Hlíðarfjalli næsta vetur. 
Guðmundur spáir því að á næstu árum verði mikil aukning á erlendu skíðaáhugafólki til Akureyrar að því tilskildu að flogið verði beint til Akureyrar.

Þórdís Ellen Rögnvaldsdóttir


Mynd augnabliksins

img_4654.jpg

Könnun

Ætlar þú að lesa Rannsóknarskýrsluna?

Sjá niðurstöður
Sjá allar kannanir

Teljari

Í dag: 5
Samtals: 174202

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Innskráning