Eyrarrósin 2012

Samkvæmt tilkynningu frá Listahátíð í Reykjavík tengir Safnasafnið saman alþýðulist og nútímalist með bæði alúð og kímni. Á Safnasafninu eru um það bil 4.000 alþýðulistaverk en einnig talsverður fjöldi af nútímalistaverkum. Safnasafnið var stofnað árið 1995 af Magnhildi Sigurðardóttur og Níelsi Hafstein.
Eyrarrósinni fylgir verðlaunagripur, flugmiðar og verðlaunafé upp á eina og hálfa milljón. Sjóræningjahúsið á Vatnseyri við Patreksfjörð og tónlistarhátíðin Við Djúpið á Ísafirði voru einnig tilnefnd til Eyrarrósarinnar í ár.
Heimild: ruv.is


