Eru allir múslimar hryðjuverkamenn?
Þessi heimildamynd veitti mér nýja sýn á Bandaríkjaher og -stjórn. Þessir vinir voru allir breskir borgarar og tóku engan þátt í neinum hryðjuverkum eða tengdust Al-qaeda á nokkurn hátt. Þeir voru hinsvegar látnir dúsa í fangelsum aðeins fyrir það að vera múslimar að því er virtist. Hermennirnir nutu þess að niðurlægja þá, kölluðu þá hryðjuverkamenn og pyntuðu þá. Þeir voru sendir margsinnis í sama yfirheyrsluherbergið og spurðir sömu spurninga mánuðum saman. Engin réttarhöld voru höfð, ekkert réttlæti. Þeir voru sendir í einangrun og festir í stressstellingu (þeir voru hlekkjaðir á fótunum og hendurnar festar á milli ökklanna þeirra).
Þessar aðferðir sem notaðar voru til þess að fá þá til að játa því að þeir voru í Al-qaeda voru sláandi. Að eins virt land og Bandaríkin skuli hafa notað þessar að mér finnst fornlegu aðferðir er ótrúlegt. Það var logið að þeim, þeim sýndar myndir og bent á menn sem áttu að vera þeir og er þeir neituðu voru þeir sendir í einangrun í 5-6 klst í senn, síðan sendir aftur í yfirheyrslu þar sem þeir voru spurðir að því sama aftur og aftur. Þetta gerðist aðeins fyrir 5-7 árum.
Að þetta fangelsi skuli hafa verið starfandi til ársins 2009 er hlægilegt. Hermenn höfðu allt vald yfir föngunum og nýttu sér það til fullnustu. Það sem mér þótti athyglisvert er hve litla virðingu hermennirnir höfðu fyrir trú fanganna. Nú eru allmargir múslimar strangtrúaðir en föngunum var bannað að biðja og einn hermanna henti Kórani eins fangans í horn þar sem hann gerði þarfir sínar. Ég móðgaðist mjög við þetta og get engan vegin skilið hvernig hermennirnir gátu hagað sér eins og þeir gerðu. Þeir gengu í skrokk á fanga sem ekki var heill á geði og hótuðu hinum föngunum sömu meðferð ef þeir myndu ekki þegja. Þessi litla virðing sem ég bar gagnvart bandarískum hermönnum er nú horfin. Þessi illska og yfirgangur er eitthvað sem ég gat ekki gert mér í hugarlund.
Vinunum þremur var sleppt árið 2005 eftir að hafa verið í fangelsinu frá árinu 2002. Engin réttarhöld voru haldin heldur báðust bandarísk yfirvöld bara afsökunar og þar við sat. Mér fannst þessi heimildamynd sýna hvernig manneskjan getur breyst þegar henni er gefið smá vald. Ég stór efast um að hermennirnir sem komu fram í myndinni láti svona t.d. heima hjá sér. Þeir fyllast valdagræðgi og breytast í eitthvað sem þeir kannski eru ekki. Þetta eru auðvitað bara getgátur en ég mun aldrei hugsa um eða líta á hermenn sömu augum aftur.


