Eric Clapton í Egilshöll

Eric Clapton hefur ákveðið að spila fyrir íslenska aðdáendur sína. Tónleikarnir munu fara fram þann 8. ágúst næstkomandi en mun miðasala hefjast 3. mars og eru liður í tónleikaferðalagi kappans um Evrópu.
Eric Clapton hefur lengi verið í hópi bestu gítarleikara í heimi, en hann gerði garðinn frægan á sínum tíma með hljómsveitunum Cream og The Yardbirds. Hann hefur áður komið á klakann og farið á laxveiðar en ekki til tónleikahalda. Búast má við fjölmenni þegar þetta stórmenni stígur á svið í Egilshöllinni enda höfðar hann til langflestra aldurshópa. Um tíu þúsund miðar verða í boði á þennan stórviðburð.


