Landpósturinn

Landpóstur - Fréttavefur Fjölmiðlanema

Fréttir

Meistaradeildin

 Mikil eftirvænting ríkir nú meðal knattspyrnuáhugamanna því Meistardeild Evrópu hefst aftur eftir nokkurt hlé, riðlakeppnin er nú búin og 16-liða úrslit hefjast með látum á þriðjudag og miðvikudag þegar fyrri leikir liðanna fara fram, en leikið er bæði heim og heiman. Meistaradeildin er sterkasta deild í heimi, þar etja kappi bestu lið, bestu leikmenn og bestu þjálfar álfunnar og því mikil hamingja fyrir unnanda góðrar knattspyrnu að fylgjast með.  


Hasarinn hefst á þriðjudag eins og fyrr segir með tveim leikjum, annars vegar leikur Lyon gegn Real Madrid og hins vegar leikur AC Milan gegn Man utd, eftir þeim leik hefur verið beðið með mikilli eftirvæntingu síðan það var ljóst í desember að þessi lið mynd mætast því þetta er í fyrsta skipti sem einn frægasti fótboltamaður heims, David Backham mætir sínum gömlu félugum í Man utd síðan hann yfirgaf félagið árið 2003. Á Miðvikudag eigast svo við Porto og Arsenal annars vegar og hins vegar Fiorentina gegn Bayern Munich. Þau lið sem ekki leika í þessari viku etja kappi í næstu viku, þá leika  Olympiacos gegn Bordeaux, Stuttgart taka á móti núverandi Evrópumeisturum í Barcelona, CSKA Moscow gegn Sevilla og síðast en ekki síst taka Cheasea menn á móti sínum gamla þjálfara, Jose Mourinho og hans mönnum í Inter Milan

Leikirninr hefjast kl 19:45 og eru þeir allir sýndir í beinni útsendingu á stöd2 sport og hliðarrásum stöðvarinnar, blaðamaður hvetur sem flesta til að fylgjast þessari skemmtun og óskar fótboltabullum gleðilegrar hátíðar.

ós



Mynd augnabliksins

img_8663.jpg

Könnun

Ætlar þú að lesa Rannsóknarskýrsluna?

Sjá niðurstöður
Sjá allar kannanir

Teljari

Í dag: 8
Samtals: 171887

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Innskráning