Landpósturinn

Landpóstur - Fréttavefur Fjölmiðlanema

Fréttir

Bágar aðstæður kvenna í þróunarlöndunum

Ófrískar konur í þróunarlöndunum standa frammi fyrir sömu lífshættum og konur í Bretlandi gerðu fyrir 100 árum síðan. Alþjóðlegi kvennadagurinn var í gær og af því tilefni fóru samtök stuðningsmanna kvenna af stað með herferð til þess að reyna að lækka dánartíðni ófrískra kvenna í þróunarlöndunum.

Samtökin leggja áherslu á að eitt af 8 markmiðum þróunaraðstoðar Sameinuðu þjóðanna sé að bæta lífsskilyrði þessara kvenna. Fyrir hverja 100.000 fæðingu í þróunarlöndunum láta 450 konur lífið á meðgöngu eða í fæðingu en árið 1910 dóu 350 konur að meðaltali fyrir hverja 100.000 fæðingu lifandi barna í Wales á Englandi. Í Ghana má rekja 560 dauðsföll kvenna til barnsburðar og meðgöngu og í Chad er talið að 1.500 konur látist að meðaltali sökum meðgöngu eða við að ala barn. Til samanburðar má geta þess að í Bretlandi í dag eru nú um 14 konur sem láta lífið sökum meðgöngu og barnsburðar fyrir hverja 100.000 fæðingu. 

 Nepal og Rwanda eru þá á meðal þeirra landa sem tekist hefur að bæta heilsu kvenna og í Mongólíu hefur tekist að lækka dánartíðni kvenna en ástæðan þar fyrir minni dánartíðni er aukin menntun kvenna þar og tekist hefur að fræða þær um meðgönguna og fæðingu. Auk þess hafa konur í Mongólíu nú tækifæri á aðstoð til að flytjast á viðeigandi stað þar sem þær geta dvalið á og alið börn sín.

 Á ráðstefnu fæðinga kvenna sem haldin verður í Washington DC í júní næstkomandi verður aðalstefnan tekin á þrýsta á stærstu leiðtoga heimsins til að taka á þessum vandamálum. Þá segir forstjóri Amnesty International í Bretlandi Kate Allen, að það hafi greinilega tekist að stórlækka tíðni látinna kvenna vegna barnsburðar og meðgöngu í Bretlandi. Þá lýsir Kate því einnig yfir að ábyrgð og skuldbinding eigi að ganga yfir allstaðar í heiminum.

Heimild: http://news.bbc.co.uk/2/hi/health/8551481.stm



Mynd augnabliksins

p9301060.jpg

Könnun

Ætlar þú að lesa Rannsóknarskýrsluna?

Sjá niðurstöður
Sjá allar kannanir

Teljari

Í dag: 8
Samtals: 171887

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Innskráning