From Paris with Love

Eftir fyrstu tíu mínúturnar fór blaðamaður að efast um að hefði verið góð hugmynd að fara á þessa mynd. Byrjunin var frekar hefðbundin kynning á persónunni Reece og hans högum en virkaði svolítið slöpp. Sem betur fór breyttist allt til hins betra þegar persónan Charlie Wax kom til sögunnar. Dularfullur og kjaftaglaður töffari á miðjum aldri, alger andstæða jakkafatagæjans Reece, en saman mynda þeir óborganlegt teymi.
Bæði Travolta og Rhys Meyers koma sínum hlutverkum frá sér fullkomlega þó svo að sá síðarnefndi falli örlítið í skuggann á stórleikaranum Travolta. Ekki er heldur hægt að setja út á leik Kasia Smutniak sem fer með hlutverk Caroline, unnustu Reece.
Handritið mætti vera betra á köflum en húmorinn og hasarinn í myndinni bæta það upp ásamt góðri leikstjórn Pierre Morel (Taken) og þegar upp er staðið er myndin frábær afþreying.
Blaðamaður mælir því hiklaust með henni


